Þú getur sótt um starfsleyfi sem þjónustuaðili brunaviðvörunarkerfa hjá HMS.
Þú verður að tilgreina ábyrgðarmann starfsleyfisins.
Einnig er mögulegt að tilgreina starfsmenn sem hlotið hafa námskeiðsskírteini þjónustuaðila brunavarna.
Skilyrði
Þú verður að vera rafvirkjameistari eða með sambærilega menntun.
Þú verður að ljúka námskeiði um brunaviðvörunarkerfi. Námskeiðin fara fram hjá Rafmennt. Eftir námskeiðið færðu skírteini sem HMS viðurkennir.
Þú verður að hafa starfað í 3 mánuði hjá aðila með starfsleyfi frá HMS.
Sækja um
Fylgigögn
Með umsókninni þarf að fylgja:
Námskeiðsskírteini.
Staðfesting um 3 mánaða starfsreynslu hjá aðila með starfsleyfi frá HMS.
Afrit af meistarabréfi.
Gæðahandbók og gæðakerfi.
Umsókn staðfest
Þú sækir um á vefnum með námskeiðsskírteini og staðfestingu á starfsreynslu.
Þú færð tölvupóst um að umsókn hafi verið staðfest.
Þú getur fylgst með stöðu umsóknar á Mínum síðum hjá HMS.
Umsókn samþykkt
Þegar umsóknin er samþykkt færðu greiðsluseðil í heimabankann.
Þegar þú hefur greitt gjaldið sendir HMS þér starfsleyfisskírteini í bréfpósti.
HMS skráir þig á lista yfir þjónustuaðila sem hlotið hafa starfsleyfi.
Leyfið gildir í fimm ár.
Endurnýjun starfsleyfis
Þú getur endurnýjað starfsleyfið eftir fimm ár með því að hafa samband við HMS í gegnum netfangið leyfi@hms.is.
Endurveiting starfsleyfis
Ef þú vilt skipta um ábyrgðaraðila leyfisins þarftu að sækja um endurveitingu starfsleyfis. Þú hefur samband við HMS í gegnum netfangið leyfi@hms.is með fylgigögnum um nám og starfsreynslu nýja ábyrgðarmannsins.
Gjöld
Gjald fyrir nýtt starfsleyfi er 41.000 krónur.
Gjald fyrir endurnýjun eða endurveitingu starfsleyfis er 18.900 krónur.
Þjónustuaðili
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun