Fara beint í efnið

Þú getur sótt um starfsleyfi sem þjónustuaðili loftgæðamælinga hjá HMS.

Þú verður að tilgreina ábyrgðarmann starfsleyfisins.

Einnig er hægt að tilgreina starfsmenn sem hlotið hafa námskeiðsskírteini þjónustuaðila brunavarna.

Skilyrði

  • Þú verður að hafa lokið námskeiði um þjónustuaðila brunavarna hjá Iðunni fræðslusetri.

  • Þú verður að hafa lokið námskeiði hjá framleiðanda búnaðarins.

  • Þú verður að hafa starfað í 3 mánuði hjá aðila með starfsleyfi frá HMS.

Sækja um

Starfsleyfi þjónustuaðila loftgæðamælinga

Fylgigögn

Með umsókninni þarf að fylgja:

  • Námskeiðsskírteini.

  • Staðfesting á 3 mánaða starfsreynslu hjá aðila með starfsleyfi frá HMS.

  • Staðfesting á kvörðun búnaðar.

  • Gæðahandbók og gæðakerfi.

Umsókn staðfest

  • Þú sækir um á vefnum með námskeiðsskírteini og staðfestingu um starfsreynslu.

  • Þú sendir tölvupóst á netfangið leyfi@hms.is með hinum fylgigögnunum.

  • Þú færð tölvupóst um að umsókn hafi verið staðfest.

  • Þú getur fylgst með stöðu umsóknar á Mínum síðum hjá HMS.

Umsókn samþykkt

Endurnýjun starfsleyfis

Þú getur endurnýjað starfsleyfið eftir fimm ár með því að hafa samband við HMS í gegnum netfangið leyfi@hms.is.

Endurveiting starfsleyfis

Ef þú vilt skipta um ábyrgðaraðila leyfisins þarftu að sækja um endurveitingu starfsleyfis. Þú hefur samband við HMS í gegnum netfangið leyfi@hms.is með fylgigögnum um nám og starfsreynslu nýja ábyrgðarmannsins.

Gjöld

Gjald fyrir nýtt starfsleyfi er 41.000 krónur.

Gjald fyrir endurnýjun eða endurveitingu starfsleyfis er 18.900 krónur.