Neyðarlýsing
Þú getur sótt um starfsleyfi sem ábyrgðarmaður þjónustuaðila neyðarlýsinga hjá HMS.
Skilyrði
Þú verður að hafa lokið námi sem löggiltur rafverktaki.
Þú verður að hafa lokið námskeiði sem HMS viðurkennir.
Ábyrgðarmaður skal skila inn afriti af gæðahandbók þjónustuaðila vegna starfseminnar.
Sækja um
Fylgigögn
Staðfesting á að ábyrgðarmaður hafi lokið námskeiði sem HMS viðurkennir.
Staðfesting á viðeigandi menntun ábyrgðarmanns
Ábyrgðarmaður skal skila inn afriti af gæðahandbók vegna starfseminnar.
Umsókn staðfest
Þú sækir um á vefnum með námskeiðsskírteini.
Þú færð tölvupóst um að umsókn hafi verið staðfest.
Þú getur fylgst með stöðu umsóknar á Mínum síðum hjá HMS.
Umsókn samþykkt
Þegar umsókn er staðfest færðu greiðsluseðil í heimabankann.
Þegar þú hefur greitt gjaldið sendir HMS þér starfsleyfisskírteini.
HMS skráir þjónustuaðila ábyrgðarmanns á lista yfir þjónustuaðila sem hlotið hafa starfsleyfi.
Leyfið gildir í fimm ár.
Endurnýjun starfsleyfis
Þú getur endurnýjað starfsleyfið eftir fimm ár með því að sækja um á mínum síðum HMS.
Gjöld
Gjald fyrir nýtt starfsleyfi er 45.190 krónur.
Gjald fyrir endurnýjun eða endurveitingu starfsleyfis er 20.700 krónur.
Þjónustuaðili
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun