Starfatorg - laus störf hjá ríkinu
Leit
152 störf fundust
Heilbrigðisþjónusta
Landspítali
Hjúkrunarnemar - Spennandi hlutastörf með námi á taugalækningadeild
Við sækjumst eftir hjúkrunarnemum til starfa í okkar góða hóp í lærdómsríku starfsumhverfi á taugalækningadeild í Fossvogi. Starfshlutfall og vinnufyrirkomulag er samkomulag (20-100%). Tekið er tillit til námsins við skipulag vakta. Ráðið er í störfin eftir samkomulagi.
Höfuðborgarsvæðið
Fossvogi
Heilbrigðisþjónusta
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á taugalækningadeild
Við sækjumst eftir metnaðarfullum hjúkrunarfræðingum til starfa með okkur á taugalækningadeild í Fossvogi. Í boði er einstakt tækifæri til að sérhæfa sig í hjúkrun sjúklinga með taugasjúkdóma auk þess að vera hluti af uppbyggingu slagþjónustu á Íslandi.
Höfuðborgarsvæðið
Fossvogi
Kennsla og rannsóknir
Fjölbrautaskóli Suðurnesja
Framhaldsskólakennari í tréiðngreinum
Óskum eftir að ráða kennara í tréiðngreinum við Fjölbrautaskóla Suðurnesja, um fullt starf er að ræða. Ráðningartími er frá 1. janúar 2027 og laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og KÍ hafa gert og nánari útfærslu í stofnanasamningi skólans.
Suðurnes
Sunnubraut 36
Löggæslustörf
Héraðsdómur Reykjaness
Dómvörður
Héraðsdómur Reykjaness óskar eftir að ráða dómvörð í fullt starf. Um er að ræða tímabundið starf til 12 mánaða frá 1. janúar 2027. Leitað er að traustum einstaklingi í starf dómvarðar hjá Héraðsdómi Reykjaness.
Höfuðborgarsvæðið
Önnur störf
Þjóðskjalasafn Íslands
Frágangur skjalasafna og stafræn endurgerð skjalasafna
Vegna aukinna sérverkefna óskar Þjóðskjalasafn Íslands eftir að ráða starfsfólk á skjalastjórnar- og skjalavörslusvið safnsins. Helstu verkefni eru við frágang og skráningu pappírsskjalasafna og við stafræna endurgerð.
Höfuðborgarsvæðið
Heilbrigðisþjónusta
Landspítali
Sérfræðingur í hjúkrun barna - Göngudeild Barnaspítala Hringsins
Laust er til umsóknar starf sérfræðings í hjúkrun barna á göngudeild Barnaspítala Hringsins. Auglýst er eftir kraftmiklum sérfræðingi í hjúkrun barna til að efla öryggi, gæði og framþróun með áherslu á þjónustu við börn með hjartasjúkdóma og svefnrannsóknir.
Höfuðborgarsvæðið
Hringbraut
Heilbrigðisþjónusta
Landspítali
Sjúkraliði á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild
Við óskum eftir sjúkraliða til starfa í okkar góða hóp á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild 13EG og bjóðum nýútskrifaða sjúkraliða jafnt sem reynslumikla velkomna. Starfshlutfall er 70-100%, unnið er í vaktavinnu og er upphaf starfa samkomulag.
Höfuðborgarsvæðið
Hringbraut
Heilbrigðisþjónusta
Landspítali
Sérfræðingur í hjúkrun - Dag- og göngudeild Barnaspítala Hringsins
Laust er til umsóknar starf sérfræðings í hjúkrun á dag- og göngudeild Barnaspítala Hringsins. Auglýst er eftir kraftmiklum einstaklingi til að efla öryggi, gæði og framþróun með áherslu á hjúkrun barna sem fara í skurðaðgerðir og/ eða þurfa sérhæfða sárameðferð.
Höfuðborgarsvæðið
Hringbraut
Heilbrigðisþjónusta
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Heilbrigðisgagnafræðingur með ábyrgð á skrifstofustarfsemi - Heyrnar og talmeinastöð HH á Akureyri
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að drífandi einstakling í starf heilbrigðisgagnafræðings hjá Heyrnar og talmeinastöð (HT) með vinnustöð á Akureyri.
Norðurland eystra
Hraunbæ 115
Kennsla og rannsóknir
Menntaskólinn á Akureyri
Félagsfræðikennari í Menntaskólanum á Akureyri
Menntaskólinn á Akureyri auglýsir eftir kennara í afleysingu í félagsfræði á vorönn 2027. MA er framsækinn skóli með langa sögu og býr nemendur undir nám í háskóla og líf og starf í lýðræðisþjóðfélagi í sífelldri þróun.
Norðurland eystra
Eyrarlandsvegi 28
Sérfræðistörf
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
Almannavarnafulltrúi hjá embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum
Við embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum er laus til umsóknar staða verkefnisstjóra almannavarna (almannavarnafulltrúi). Um spennandi, krefjandi og fjölbreytt starf er að ræða sem heyrir undir lögreglustjóra.
Suðurnes
Hringbraut 130
Heilbrigðisþjónusta
Landspítali
Lífeindafræðingur eða náttúrufræðingur á hjartarannsóknarstofu
Laust er til umsóknar starf lífeindafræðings eða náttúrfræðings á hjartarannsóknarstofu Landspítala. Á einingunni starfar 25 manna samhentur hópur í þverfaglegulegu teymi og í nánu samstarfi við aðra faghópa. Starfsemi hjartarannsóknastofu er fjölbreytt og enginn dagur er eins.
Höfuðborgarsvæðið
Hringbraut