Fara beint í efnið

Til að nálgast umsóknarformið þarf að tengjast umsóknarkerfi Rannís með rafrænum skilríkjum. Ef notandi er erlendis gæti þurft að nota auðkennisappið frekar en auðkenningu gegnum símanúmer.

Sjá upplýsingar um hvernig einstaklingar geta skráð sig innn á fyrir hönd opinberra aðila í gegnum umboðskerfi innskráningarþjónustu Ísland.is. Ef spurningar vakna tengt veitingu umboðs þarf að hafa samband við island.is. Notandi sem gerir umsókn fyrir skóla má vera einstaklingur og það er algengast.

Eftir að umsókn er send sést hún undir “Umsóknir->Innsendar” á mínum síðum þess notanda sem sendi.

Fjárhagsáætlun - heildarkostnaður og tekjur verkefnis

Mikilvægt er að hafa í huga við gerð fjárhagsáætlunar í umsóknarformi (hluti „3. Kostnaður og fjármögnun“) að átt er við heildarkostnað (t.d. eigið framlag í formi vinnu) og fjármögnun verkefnisins.

Tilgreina þarf fjármögnun á móti styrknum (t.d. eigið framlag í formi vinnu) sem sótt er um til Sprotasjóðs. Ef sótt er um styrk eða framlög til annarra skal tilgreina það í
umsókn.

Gagnlegar upplýsingar fyrir umsækjendur:

Umsókn má vera á íslensku eða ensku.