Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Skilyrði úthlutunar

Samkvæmt reglugerð um Sprotasjóð leik-,grunn- og framhaldsskóla skal mat á umsóknum einkum byggjast á eftirtöldum sjónarmiðum:

  • gildi og mikilvægi verkefnis með tilliti til hlutverks Sprotasjóðs,

  • verkefni feli í sér þróunarstarf innan skóla, samstarf milli skóla eða skólastiga,

  • verkefnið falli að þeim áherslum eða áherslusviðum er fram koma í auglýsingu,

  • líkum á því að umsækjanda/umsækjendum takist að ná þeim markmiðum er verkefnið miðar að,

  • starfsferli og faglegum eða fræðilegum bakgrunni umsækjanda og annarra þátttakenda m.t.t. þeirra krafna sem verkefnið gerir til þeirra.

Mats- og úthlutunarferlið

  • Stjórn sjóðsins metur umsóknir og gerir tillögu að úthlutun. Mennta- og barnamálaráðherra tekur ákvörðun um úthlutun styrkja út frá frá tillögu stjórnar.

  • Allir umsækjendur fá tilkynningu um hvort þeir hafa hlotið styrk eða ekki.

  • Verði af veitingu styrks þarf forsvarsmaður styrkþega að undirrita rafrænt skilmála styrksins.

  • Umsóknir eru meðhöndlaðar sem trúnaðargögn. 

  • Reglur 3.gr. stjórnsýslulaga gilda um vanhæfi stjórnarmanna/matsmanna.

  • Lýsing til opinberrar birtingar á styrktu verkefni birtist með færslu verkefna á gagnatorgi Rannís.