Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Sprotasjóður leik-, grunn- og framhaldsskóla

Greiðslur, greiðslutilhögun og skýrslur

Styrkþegi getur séð  upplýsingar um greiðslur og skýrsluskil í rafrænt undirrituðum skilmálum styrks. 

Greiðslur

  • Greiðslur taka mið af upphæð styrks.

  • Styrkir allt að 2.000.000 kr. eru greiddir út í einni greiðslu eftir undirritun skilmála.

  • Styrkir hærri en 2.000.000 kr. eru greiddir út í tveimur greiðslum, 70% eftir undirritun skilmála og 30% eftir að lokaskýrsla hefur verið samþykkt.

Skýrslur

  • Sjá upplýsingar í undirrituðum skilmálum styrks.

  • Í öllum tilvikum skal skila lokaskýrslu og mælst er til að það sé gert sem fyrst eftir að verkefni lýkur en eigi síðar en 3 mánuðum eftir tilgreindan lokadag í skilmálum styrks.

  • Sá notandi (einstaklingur eða skóli/sveitarfélag) sem sendi umsókn getur nálgast skýrsluform verkefnis á „sínum síðum“ Rannís. 

  • Ef með þarf er hægt að flytja skýrsluform á annan notanda. Beiðni um það er send á netfang sjóðsins; sprotasjodur(hjá)rannis.is. 

  • Ef styrkþegi sækir um fyrir nýtt verkefni áður en yfirstandandi verkefni er lokið þarf að skila áfangaskýrslu fyrir yfirstandandi verkefni til að ný umsókn sé tekin til greina.

  • Lýsing á framkvæmd verkefnis til opinberrar birtingar í lokaskýrslu birtist með færslu verkefnis á gagnatorgi Rannís.

  • Sé styrkur Sprotasjóðs 3.000.000 kr. eða hærri skal senda inn hreyfingarlista bókhalds