Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Skattframtal og álagning einstaklinga

Slysatrygging við heimilisstörf

Hægt er að óska eftir slysatryggingu við heimilisstörf með því að merkja við sérstakan reit á forsíðu skattframtals.

Gjald vegna slysatryggingar við heimilisstörf er kr. 550

Þau sem fylla út viðeigandi reit á skattframtali teljast slysatryggð við heimilisstörf frá 1. júní það ár til 31. maí árið eftir, en einungis ef skattframtali hefur verið skilað á réttum tíma.

Gjald vegna tryggingarinnar er lagt á við álagningu opinberra gjalda.

Sjá nánar um bætur vegna slysa á vef Sjúkratrygginga Íslands.

Ítarefni

Þjónustuaðili

Skatt­urinn