Skattframtal og álagning einstaklinga
Í mars á hverju ári þurfa einstaklingar að skila skattframtali þar sem fram koma allar upplýsingar varðandi skattamál þeirra á nýliðnu ári. Eftir að unnið hefur verið úr innsendum skattframtölum eru skattar ársins gerðir upp með álagningu opinberra gjalda í lok maí.
Hjá flestum launþegum eru helstu upplýsingar forútfylltar þegar framtalið er opnað. Það er samt mikilvægt að fara vel yfir öll gögn því það er á ábyrgð hvers og eins að þær upplýsingar sem skilað er inn séu réttar og bæta við upplýsingum þar sem við á
Skattframtali er skilað rafrænt á þjónustuvef Skattsins og í því er að finna leiðbeiningar með hverjum kafla (merkt með litlu spurningamerki).
Sjá leiðbeiningar með framtali 2026 á vef Skattsins.
Sjá nánar um innskráningu, búsetu og fleira á vef Skattsins.
Framtalsfrestur 2026 er til 13. mars.
Þjónustuaðili
Skatturinn