Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Skattframtal og álagning einstaklinga

Álagning opinberra gjalda

Við álagningu er unnið úr skattgögnum og framtali vegna fyrra árs (tekjuárs) og það gert upp auk þess sem lögð eru á gjöld eins og útvarpsgjald og gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra.

Álagning opinberra gjalda einstaklinga fer fram í lok maí, ár hvert.

Inneign og skuldir

Inneign eftir álagningu er lögð inn á skráðan bankareikning. Skuld er dreift á nokkra gjalddaga og innheimt gegnum launagreiðendur.

Inneign eftir álagningu

Inneign eftir álagningu gæti verið vegna ýmissa þátta:

  • Ónýttur persónuafsláttur eða ofgreiðsla í of háu skattþrepi

  • Barnabætur og vaxtabætur

  • Ívilnun til lækkunar tekjuskattsstofns (til dæmis vegna framfærslu ungmenna eða veikinda)

  • Endurgreiðsla fjármagnstekjuskatts

  • Útsvar sveitarfélags er undir landsmeðaltali

Inneign er lögð inn á skráðan bankareikning. Ef upplýsingar um bankareikning eru ekki til staðar er einfalt að setja þær inn á Mínum síðum Ísland.is.

Skuld eftir álagningu

Skuld eftir álagningu má yfirleitt rekja til einhverra af eftirfarandi þáttum:

  • Útvarpsgjald og gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra

  • Ofnýttur persónuafsláttur eða skattur greiddur í röngu skattþrepi (til dæmis vegna greiðslna frá fleiri en einum launagreiðanda)

  • Tilfallandi verktakagreiðslur

  • Styrkur þar sem ekki hefur verið færður frádráttur á móti

  • Skattur af leigutekjum, söluhagnaði, arði eða vaxtatekjum

  • Útsvar sveitarfélags er hærra en landsmeðaltal

Skuld er skipt niður á allt að sjö gjalddaga. Innheimta skulda fer almennt í gegnum launagreiðendur, með því að þeim er send krafa um að draga skuld frá launum hvers mánaðar.

Greiðsluáætlun vegna skuldar

Þau sem það vilja geta sótt um að gera nýja greiðsluáætlun og skipta greiðslunni á lengra tímabil. Með greiðsluáætlun má lækka mánaðarlega greiðslubyrði en á móti kemur hærri vaxtakostnaður.

Sjá nánar um greiðsluáætlanir.

Beiðni um leiðréttingu

Niðurstöðu álagningar má kæra með því að senda inn beiðni um leiðréttingu. Þar er hægt að gera grein fyrir þeim efnisatriðum sem þarf að breyta á framtalinu sem liggur til grundvallar og senda viðbótargögn máli þínu til stuðnings.

Beiðni um leiðréttingu á skattframtali

Þegar niðurstöður kærunnar liggja fyrir verður bréf sent í Stafræna pósthólfið á Ísland.is.

Ég á eftir að skila framtali – hvað geri ég?

Framtal þeirra sem eiga eftir að skila er enn aðgengilegt á þjónustuvef Skattsins. Þau sem eiga eftir að skila þurfa að skrá sig inn á þjónustuvef með rafrænum skilríkjum eða veflykli og skila framtalinu.

Framtalið verður þá tekið fyrir sem kæra og er bréf sent í Stafrænt pósthólf á Ísland.is þegar niðurstaða liggur fyrir.

Skattframtal einstaklinga

Á þjónustuvef Skattsins

Þjónustuaðili

Skatt­urinn