Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Skattframtal og álagning einstaklinga

Gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra

Einstaklingar á aldrinum 16 til 69 ára greiða gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra, að því gefnu að tekjur þeirra séu yfir tekjumörkum. Undanþegnir eru elli- og örorkulífeyrisþegar sem dvelja á dvalar- og hjúkrunarheimilum.

Gjaldárið 2026 er gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra kr. 14.614

Gjaldið er lagt á við álagningu opinberra gjalda ár hvert, í fyrsta skipti við álagningu á árinu eftir að 16 ára aldri er náð og í síðasta skipti í álagningu á því ári sem 70 ára aldri er náð.

Tekjustofn vegna gjalds í Framkvæmdasjóð aldraðra samanstendur af:

  • Tekjuskattsstofni (tekjum eftir leyfilegan frádrátt)

  • að viðbættum fjármagnstekjuskattsstofni.

Hjá hjónum og samsköttuðu fólki er sameiginlegum fjármagnstekjum deilt jafnt á milli beggja.

Tekjumörk eru þau sömu og skattleysismörk fyrir hvert ár.

Um Framkvæmdasjóð aldraðra

Framkvæmdasjóður aldraðra er í vörslu heilbrigðisráðuneytisins og stjórn hans leggur fram tillögur til úthlutunar á hverju ári. Sjá nánari upplýsingar um Framkvæmdasjóð aldraðra á vef Stjórnarráðsins.

Fjárhæðir

Gjaldár

Gjald í Framkvæmdasjóð

Tekjumörk einstaklinga

2026

14.614

2.617.618

2025

14.093

2.474.942

Ítarefni

Þjónustuaðili

Skatt­urinn