Skattframtal og álagning einstaklinga
Útvarpsgjald
Útvarpsgjald er lagt er á einstaklinga og lögaðila við álagningu opinberra gjalda.
Gjaldárið 2026 er útvarpsgjald kr. 22.200
Einstaklingar
Einstaklingar á aldrinum 16 til 69 ára greiða útvarpsgjald, að því gefnu að tekjur þeirra séu yfir tekjumörkum. Undanþegnir eru elli- og örorkulífeyrisþegar sem dvelja á dvalar- og hjúkrunarheimilum.
Gjaldið er lagt á við álagningu opinberra gjalda ár hvert, í fyrsta skipti við álagningu á árinu eftir að 16 ára aldri er náð og í síðasta skipti í álagningu á því ári sem 70 ára aldri er náð.
Tekjustofn vegna útvarpsgjalds samanstendur af:
Tekjuskattsstofni (tekjum eftir leyfilegan frádrátt)
að viðbættum fjármagnstekjuskattsstofni.
Hjá hjónum og samsköttuðu fólki er sameiginlegum fjármagnstekjum deilt jafnt á milli beggja.
Tekjumörk vegna útvarpsgjalds einstaklinga eru þau sömu og skattleysismörk fyrir hvert ár.
Lögaðilar
Innlendir lögaðilar eru einnig gjaldskyldir, nema dánarbú, þrotabú og aðrir lögaðilar sem sérstaklega eru undanþegnir skattskyldu samkvæmt lögum um tekjuskatt.
Fjárhæðin er sú sama hjá lögaðilum og einstaklingum.
Fjárhæðir
Gjaldár | Útvarpsgjald | Tekjumörk einstaklinga |
|---|---|---|
2026 | 22.200 | 2.617.618 |
2025 | 21.400 | 2.474.942 |
Ítarefni
Lagagrein um útvarpsgjald (nr. 23/2013)
Þjónustuaðili
Skatturinn