Fara beint í efnið

Skattur af launum og lífeyri

Skattur er dreginn af launum og lífeyri við hverja útborgun.

Launagreiðandi, eða sá sem greiðir þér lífeyri, dregur skattinn af við hverja útborgun og greiðir til ríkisins. Þetta kallast staðgreiðsla.

Með launum er ekki bara átt við regluleg mánaðarlaun, heldur líka allar viðbótargreiðslur og hlunnindi eins og fatnað, vörur, ökutæki og fleira.

Sjá nánar um greiðslur til einstaklinga og skattskyldu af þeim, til dæmis hlunnindi og ólíkar tegundir styrkja.

Útreikningur á staðgreiðslu

Skattur er reiknaður af launum og lífeyri eftir að greiðslur eins og iðgjald í lífeyrissjóð og séreignarsparnaður hafa verið dregnar frá.

Persónuafsláttur er föst upphæð sem dregst frá skattgreiðslum í hverjum mánuði. Persónuafsláttur sem þú nýtir ekki safnast upp innan ársins. Hjón og sambúðarfólk geta líka nýtt persónuafslátt hvort annars.

Sjá nánar um persónuafslátt og skattþrep, til dæmis skattprósentur í skattþrepum og hvernig þú getur nýtt persónuafslátt sem best.

Tekjuskattur og útsvar

Skattur af launum og lífeyri skiptist í tvennt:

  • Tekjuskattur er greiddur til ríkisins. Hann er í þremur skattþrepum sem hækka með hærri tekjum.

  • Útsvar rennur til þess sveitarfélags sem þú býrð í.

Útsvar er mismunandi eftir sveitarfélögum. Í staðgreiðslu er miðað við meðalútsvar á öllu landinu og því geta orðið breytingar á þínu útsvari þegar skattframtalið er gert upp.

Ef þú flytur milli sveitarfélaga á árinu skiptist útsvarið á milli þeirra eftir því hve lengi þú bjóst á hverjum stað.

Hægt er að sjá útsvarsprósentur sveitarfélaga á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Uppgjör eftir skattframtal

Staðgreiddur skattur er bráðabirgðagreiðsla.

Skattar ársins eru gerðir upp eftir að þú skilar skattframtali. Það er kallað álagning og þá kemur í ljós hvort þú eigir inneign hjá Skattinum eða skuldir.

Sjá nánar um skattframtal og álagningu opinberra gjalda.

Þjónustuaðili

Skatt­urinn