Skammtímadvalarleyfi er ætlað útlendingum sem vilja dvelja á Íslandi lengur en 90 daga, annað hvort í þeim tilgangi að heimsækja náinn fjölskyldumeðlim í lengri tíma eða til að heimsækja landið sem listamenn, vísindamenn eða íþróttamenn.
Þú getur ekki sótt um skammtímadvalarleyfi til að framlengja dvöl þína á Íslandi.
Það getur tekið allt að sex mánuði að fá svar við nýrri umsókn um dvalarleyfi.
Áritunarskyldir einstaklingar mega ekki leggja inn umsókn á meðan þeir eru staddir á landinu.
Einstaklingar sem ekki þurfa áritun mega leggja inn umsókn á meðan þeir dvelja á landinu en þurfa að yfirgefa landið áður en 90 daga áritunarfrelsi á Schengen-svæðinu er liðið.
Samfelld dvöl á landinu má ekki vara lengur en 180 daga í senn og tekur gildistími skammtímadvalarleyfis mið af því. Dvöl í öðru ríki sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu jafngildir dvöl hér á landi.
Umsóknarferli
Dvöl á landinu meðan sótt er um
Þjónustuaðili
Útlendingastofnun