Ef þú uppfyllir öll skilyrði dvalarleyfis er leyfið veitt og þú færð senda tilkynning um að umsóknin hafi verið samþykkt.
Þurfir þú vegabréfsáritun til að komast til Íslands sendir Útlendingastofnun beiðni um svokallaða komuáritun til viðeigandi sendiráðs, sjá nánari upplýsingar um hvað sendiráð veita slíka áritun.
Útgáfa dvalarleyfis
Áður en dvalarleyfið er gefið út þarftu að mæta í myndatöku fyrir dvalarleyfiskort, annað hvort til Útlendingastofnunar, þar er nauðsynlegt að panta tíma, eða til sýslumanna utan höfuðborgarsvæðisins. Nauðsynlegt er að hafa vegabréf meðferðis til staðfestingar á auðkenni.
Hafir þú ekki mætt til myndatöku innan 90 daga frá tilkynningu um veitingu dvalarleyfis verður leyfi ekki útgefið. Það getur leitt til ólögmætrar dvalar, brottvísunar og endurkomubanns.
Dvalarleyfiskort
Þegar þú hefur mætt í myndatöku er dvalarleyfið gefið út og dvalarleyfiskort pantað. Framleiðsla korts tekur að jafnaði um 10 daga. Þú færð sent sms eða tölvupóst þegar kortið er tilbúið til afhendingar.
Ef þú fórst í myndatöku í afgreiðslu Útlendingastofnunar að Dalvegi 18 er dvalarleyfiskort sent í Hagkaup til afhendingar eða það er afhent í afgreiðslu Útlendingastofnunar, þú munt fá tilkynningu um hvert þú getur sótt kortið.
Ef þú vilt heldur sækja kortið á skrifstofu sýslumannsembættis utan höfuðborgarsvæðisins skaltu taka það fram þegar þú mætir í myndatöku.
Þjónustuaðili
Útlendingastofnun