Fara beint í efnið

Skammtímadvalarleyfi

Skammtímadvalarleyfi

Réttindi og skyldur

  • Dvalarleyfi á grundvelli skammtímadvalar er að hámarki veitt til dvalar í 180 daga.

  • Dvalarleyfishafa er ekki heimil dvöl hér á landi eftir gildistíma dvalarleyfisins. Útlendingi, sem er undanþeginn áritunarskyldu, er þó heimil dvöl innan Schengen-svæðisins í allt að 90 daga að loknum gildistíma leyfisins.

  • Dvalarleyfið veitir ekki rétt til skráningar lögheimilis á Íslandi.

Réttur til endurnýjunar leyfis

  • Dvalarleyfið er ekki hægt að endurnýja.

  • Eingöngu er hægt að veita dvalarleyfið einu sinni á tólf mánaða tímabili.

Réttur til fjölskyldusameiningar

  • Dvalarleyfið veitir ekki rétt til fjölskyldusameiningar.

Réttur til að vinna

  • Handhafar dvalarleyfis á grundvelli skammtímadvalar hafa ekki heimild til að vinna nema í undantekningar tilfellum.

  • Eftirtaldi útlendingar eru undanþegnir kröfu um atvinnuleyfi vegna vinnu í allt að 90 daga á ári hér á landi.

    • Vísinda- og fræðimenn, þar með talið doktors- og starfsnemar, í tengslum við kennslu-, fræði- eða vísindastörf hér á landi eða sambærilega starfsemi, og skal þá viðkomandi útlendingur hafa lokið háskólanámi í tengslum við það starf sem um ræðir.

    • Listamenn, að undanskildum hljóðfæraleikurum sem ráða sig til starfa á veitingahúsum.

    • Íþróttaþjálfarar.

    • Fulltrúar í viðskiptaerindum.

    • Ökumenn fólksflutningabifreiða sem skráðar eru í erlendu ríki, enda hafi þeir komið með erlenda ferðamenn í bifreiðunum til landsins.

    • Blaða- og fréttamenn erlendra fjölmiðla sem eru í þjónustu fyrirtækja sem ekki hafa starfsstöð á Íslandi.

    • Starfsmenn, ráðgjafar og leiðbeinendur sem vinna að sérhæfðri samsetningu, uppsetningu, eftirliti eða viðgerð tækja.

  • Nauðsynlegt er að tilkynna um vinnu á grundvelli undanþágunnar eigi síðar en sama dag og vinnan hefst í hvert skipti. Athugið að senda þarf tilkynningu fyrir hvert tímabil sem undanþágan er nýtt.

    • Leiðbeiningar við útfyllingu rafrænar tilkynningar.

    • Ef tilkynning hefur ekki verið send telst einstaklingur ekki undanþeginn atvinnuleyfi þar sem ákvæði laga teljast ekki uppfyllt. Getur það leitt til þess að viðkomandi starfsmaður verði stöðvaður og vísað frá á landamærum.

Réttur til ótímabundins dvalarleyfis

  • Dvalarleyfið getur ekki verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis.

Skammtímadvalarleyfi

Þjónustuaðili

Útlend­inga­stofnun