Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Samskiptasvik

Tapaður peningur

1. Láttu banka eða fjármálaþjónustu vita

Hafðu samband við bankann þinn eða fjármálaþjónustu sem fyrst til að endurheimta peninginn. Því fyrr sem brugðist er við, því meiri líkur eru á að stöðva greiðsluna.

2. Tilkynna til lögreglu

Tilkynntu fjársvikin til lögreglu, annað hvort hér eða á næstu lögreglustöð. Í tilkynningunni er beðið um að gefa lögreglunni heimild til að fá upplýsingar um greiðsluna hjá bankanum þínum. Það er mikilvægt til að hjálpa við rannsókn málsins.

Tilkynning um fjársvik

Sjá ráð til að verjast samskiptasvikum.

Þjónustuaðili

Lögreglan