Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Tryggðu öryggi þitt á netinu

Aðgangsstýring

  • Notaðu alltaf fjölþátta auðkenningu þegar mögulegt er.

  • Notaðu aðgangslykla (e. passkey) frekar en lykilorð þegar hægt er (til dæmis í Google og Apple-aðgöngum). Þetta er fjölþátta auðkenning sem styðst oft við lífkenni (fingrafara- eða andlitskanna) sem er öruggara en lykilorð. Öruggast af öllu er að vista aðgangslykla á USB.

  • Notaðu nýtt lykilorð fyrir hvern aðgang og hvert tæki. Þetta kemur í veg fyrir að einhver komist inn á alla þína miðla með eina og sama lykilorðinu. Þú getur notað lykilorðabanka eins og 1Password eða LastPass til að hjálpa þér að hafa mismunandi lykilorð á hverjum aðgangi á meðan þú þarft bara að muna og passa vel upp á eitt lykilorð.

  • Ef þú býrð til lykilorð, passaðu að það sé eins öruggt og hægt er. Reyndu að nota orð og tölustafi sem eingöngu þú getur vitað og erfitt er að giska á. Ekki nota nöfn eða dagsetningar sem aðrir vita að séu þér mikilvægar.

  • Ekki vista lykilorð í vafra.

  • Gerðu öryggisspurningar sem eingöngu þú veist svörin við.

  • Skráðu þig inn og út í hvert sinn sem þú ferð inn á tæki, tölvupóst eða aðrar vefsíður með persónulegum upplýsingum.

Örugg nettenging

Það er góð regla að breyta lykilorðinu á þráðlausa netinu (WiFi) reglulega til að koma í veg fyrir að einhver geti fylgst með því hvað þú ert að gera á netinu. Öruggast er að nota VPN til að koma í veg fyrir hlerun á samskiptum. Sjá nánar um notkun á VPN.

Leiðbeiningar fyrir netbeini

Vodafone

Síminn

Tölvupóstur

Í tölvupóstinum þínum geta leynst viðkvæmar upplýsingar og því þarf að huga sérstaklega að öryggi í kringum hann. Notaðu tölvupóstinn helst bara á tölvu sem þú veist að sé örugg. Öruggast er að nota tölvupóstforrit sem nota dulkóðun (encrypted emails).

Það er auðvelt að setja upp áframsendingu á tölvupósti sem getur keyrt í bakgrunni án þess að gera vart við sig. Skoðaðu eftirfarandi í stillingum tölvupósts:

  • Öruggt lykilorð og fjölþátta auðkenning.

  • Endurheimtar-netfangið (recovery email) fyrir gleymt lykilorð.

  • Áframsendingar á tölvupósti. Það gæti bæði þurft að skoða í vefviðmóti og í forriti, til dæmis í Outlook og Outlook Web access. Ef um vinnupóst er að ræða er best að fá tölvudeildina í vinnunni til að aðstoða.

Tölvan og snjalltæki

Ef einhver er með aðgang að tækjunum þínum getur viðkomandi náð í upplýsingar og notað reikningana þína. Þess vegna er best að tryggja þau vandlega. Best er að vera með góða vírusvörn til að koma í veg fyrir vafasöm forrit. Á vefsíðunni VirusTotal er hægt er að framkvæma athugun á skrám, vefslóðum og IP-tölum gagnvart spillikóða eða óværu að kostnaðarlausu. Sjá leiðbeiningar um VirusTotal.

Aldrei leyfa ókunnugum að taka yfir tölvuna þína með forritum á borð við AnyDesk. Það er þekkt aðferð hjá svikurum. Ef einhver hefur tekið yfir tölvuna þína geturðu leitað til tölvuþjónustuaðila eða CERT-IS til að fá aðstoð.

Njósnabúnaður

Ef þú smellir á tengil eða opnar hugbúnað frá ótraustum aðila gæti tölvan smitast af njósnahugbúnaði sem sendir upplýsingar til þriðja aðila. Viðskiptavinir Hringdu, Símans og Vodafone geta snúið sér til síns farsímafélags til að fá aðstoð ef þá grunar að það sé njósnabúnaður á snjallsímanum þeirra.

Leiðbeiningar til að finna og fjarlægja njósnabúnað

Mac

Windows

Android

iPhone

Örugg uppfærsla á tölvu og hugbúnaði

Daglega uppgötvast gallar í hugbúnaði. Tölvuþrjótar geta mögulega notfært sér þessa galla til að koma fyrir njósnahugbúnaði eða lausnargjaldsóværum.

Uppfærðu hugbúnaðinn þinn reglulega

Passaðu að uppfærslurnar komi frá traustum aðila

Farðu varlega ef þú færð óvenjulega beiðni frá hugbúnaði.

Microsoft Office-hættur

  • Microsoft Office-skjöl sem berast í tölvupósti gætu innihaldið hættulega smákóða (e. macros).

  • Ekki virkja eða niðurhala Microsoft Office-skjölum nema vera viss um að það sé algjörlega nauðsynlegt.

  • Ef þú áttir ekki von á tölvupósti með viðhengi skaltu fara sérstaklega varlega. 

Einkahamur

Þegar þú notar vafra í einkaham (private eða incognito-glugga) geturðu falið hvaða vefsíður þú hefur skoðað. Þetta er sérstaklega mikilvægt þegar þú ert að nota tölvu sem aðrir eru með aðgang að. Passaðu að bókamerki vistast samt ennþá og það þarf sérstaklega að eyða skjölum sem þú hleður niður. Athugaðu samt að njósnabúnaður á tækjum getur mögulega fylgst með í bakgrunni hvað er skoðað í einkaham.

Þjónustuaðili

Lögreglan