Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Netsvikarar nota tölvupósta, símtöl, SMS og samfélagsmiðla til að blekkja fólk og svíkja út peninga. Þetta kallast vefveiðar. Þeir þykjast oft vera þekktir aðilar, eins og fyrirtæki, bankar, frægir einstaklingar eða jafnvel lögreglan, eða hafa búið til gerviprófíla á netinu. Fölsuð samskipti og falskar fréttir á samfélagsmiðlum verða sífellt algengari á íslensku. Hins vegar má oft greina smáatriði sem benda til svika.

Algengar aðferðir

Netsvikarar reyna oft að skapa tilfinningu fyrir neyðarástandi með því að segja að reikningi verði lokað, gögnum eytt eða að einhver sé í bráðri krísu. Þeir vonast til að fá þig til að grípa til skjótra aðgerða án umhugsunar.

Aldrei gefa neinum fjaraðgang að tölvunni þinni eða aðgang að bankareikningi undir þessum kringumstæðum. Þessi svik eru hönnuð til að hræða fólk til að bregðast skjótt við.

Fræðslumyndband um vefveiðar

Hefurðu tapað pening?

Þjónustuaðili

Lögreglan