Samskiptasvik
Ábending um samskiptasvik
Ekki svara skilaboðunum, blokkaðu viðkomandi og sendu tölvupóstinn eða skjáskot af skilaboðunum á phishing@cert.is og ábendingu til lögreglu. Þú getur líka áframsent á vefsvik@logreglan.is.
Upplýsingarnar geta nýst til að vara við yfirstandandi herferðum, loka fyrir fleiri skilaboð frá sama aðila, greina breytingar í svikaaðferðum og aðstoða við erlend lögreglumál.
Samskipti í nafni íslensks fyrirtækis eða stofnunar
Áframsendu póstinn á rétt netfang fyrirtækis eða stofnunar til að láta vita að verið sé að senda svikapóst út í þeirra nafni.
Þjónustuaðili
Lögreglan