Fölsk fyrirmæli
Fyrirmælasvik beinast að fyrirtækjum og samtökum þar sem starfsmaður fær tölvupóst sem virðist koma frá stjórnanda, öðrum samstarfsmanni eða fyrirtæki en er í raun frá glæpamanni. Í póstinum er starfsmaðurinn oft beðinn um að millifæra pening sem allra fyrst eða breyta launareikningi.
Svikararnir hafa oft brotist inn í tölvukerfi og senda mjög sannfærandi falska pósta. Þeir nýta sér sérstaklega óvissutímabil, eins og þegar nýtt starfsfólk kemur til starfa, við skipulagsbreytingar eða í fríum.
1. Tilkynna til lögreglu
Hægt er að tilkynna hér eða á næstu lögreglustöð.
2. Hafðu samband við tölvudeildina
Ef þú hefur ekki þegar gert það ættirðu að hafa samband við tölvudeildina í fyrirtækinu þínu. Yfirmenn tölvudeilda ættu að tilkynna öryggisbrestinn til CERT-IS með tölvupósti á phishing@cert.is.
Ráð til að varast fyrirmælasvikum
Athugaðu vel tölvupósta og skilaboð sem biðja um persónulegar upplýsingar, millifærslur eða breytingar á launareikningum. Skoðaðu netfang, birtingarnafn, greiðsluupplýsingar og hvort fleiri hafi fengið svipaðan póst
Hafa verklag þannig að greiðslubeiðnir og -breytingar séu staðfestar með símtali.
Ekki láta undan þrýstingi og vertu vakandi fyrir að ítrekanir eru til þess gerðar að láta starfsfólk gera mistök.
Falskir tölvupóstar
Falsaðir reikningar
Þjónustuaðili
Lögreglan