Fara beint í efnið

Orlofs- og desemberuppbætur - Sjúkra- og endurhæfingargreiðslur

Orlofs- og desemberuppbætur eru að hámarki 137.857 kr. árið 2026 til einstaklinga með sjúkra- og endurhæfingargreiðslur.

Orlofs- og desemberuppbætur lækka um 2% af tekjum umfram almennt frítekjumark. Almennt frítekjumark sjúkra- og endurhæfingargreiðslna er 504.960 kr.

Orlofsuppbótin er 40% af fjárhæðinni sem viðkomandi á rétt á og desemberuppbótin 60%.

Orlofsuppbót er greidd 1. júlí og desemberuppbót 1. desember.

Fjárhæð orlofs- og desemberuppbóta reiknast í samræmi fjölda mánaða á árinu sem viðkomandi á rétt á greiðslum.

Ekki þarf að sækja um þessar uppbætur, þær eru reiknaðar sjálfkrafa hjá þeim sem eiga rétt á þeim.

Hér fyrir neðan má nálgast svör við algengum spurningum varðandi greiðslurétt orlofs- og desemberuppbóta.

Þjónustuaðili

Trygg­inga­stofnun