Tryggingastofnun: Orlofs- og desemberuppbætur
Ég er með örorkulífeyri, hvað fæ ég mikið greitt í orlofs- og desemberuppbætur?
Fjárhæðir orlofs- og desemberuppbóta ráðast af tekjum, réttindahlutfalli og fjölda mánaða sem viðkomandi á rétt á greiðslum á árinu.
Orlofs- og desemberuppbætur árið 2026 eru að hámarki:
Einstaklingar með örorkulífeyri 137.857 kr.
Orlofs- og desemberuppbætur lækka um 2% af tekjum umfram almennt frítekjumark viðkomandi greiðsluflokks.
Almenn frítekjumörk eru:
1.262.400 kr. vegna örorku- og hlutaörorkulífeyris.
Ef réttur er á örorkulífeyri reiknast fjárhæðin í samræmi við réttindahlutfall. Réttindahlutfall er reiknað út frá búsetu á Íslandi fram að samþættu sérfræðimati og framreiknað eftir atvikum til 67 ára aldurs.
Fjárhæð orlofs- og desemberuppbóta reiknast í hlutfalli við þann fjölda mánaða á árinu sem viðkomandi á rétt á greiðslum.
Dæmi
Einstaklingur með örorkulífeyri allt árið 2026, með 100% réttindahlutfall og 3.600.000 kr. í árstekjur.
