Tryggingastofnun: Orlofs- og desemberuppbætur
Ég er með sjúkra- og endurhæfingargreiðslur, hvað fæ ég mikið greitt í orlofs- og desemberuppbætur?
Fjárhæðir orlofs- og desemberuppbóta ráðast af tekjum, réttindahlutfalli og fjölda mánaða sem viðkomandi á rétt á greiðslum á árinu.
Orlofs- og desemberuppbætur árið 2026 eru að hámarki:
Einstaklingar með sjúkra- og endurhæfingargreiðslur 137.857 kr.
Orlofs- og desemberuppbætur lækka um 2% af tekjum umfram almennt frítekjumark viðkomandi greiðsluflokks.
Almenn frítekjumörk eru:
504.960 kr. vegna sjúkra- og endurhæfingargreiðslna.
Réttindahlutfall er reiknað út frá búsetu á Íslandi og framreiknað eftir atvikum til 67 ára aldurs. [SJ1] Réttindahlutfall sjúkra- og endurhæfingargreiðslna er ávallt 100%.
Fjárhæð orlofs- og desemberuppbóta reiknast í hlutfalli við þann fjölda mánaða á árinu sem viðkomandi á rétt á greiðslum.
Dæmi
Einstaklingur með sjúkra- og endurhæfingargreiðslur 8 mánuði árið 2026 og 2.500.000 kr. í árstekjur.
