Tryggingastofnun: Orlofs- og desemberuppbætur
Hvers vegna er greiðsluréttur minn til orlofs- og desemberuppbóta mismunandi á milli ára?
Nokkrar ástæður geta verið fyrir því að greiðsluréttur til orlofs- og desemberuppbóta sé mismunandi á milli ára.
Nefna má:
Að tekjuforsendur geta breyst milli ára.
Viðkomandi hafi fengið fleiri mánuði greidda á fyrra ári en á yfirstandandi ári.
Breyttar reiknireglur í nýju kerfi. Í eldra kerfi var um að ræða hlutfall af tilteknum greiðsluflokkum en í nýju kerfi er um að ræða fasta grunnfjárhæð sem er greidd óháð því hvort einstaklingar eigi rétt á heimilisuppbót eða ekki.