Fara beint í efnið

Tryggingastofnun: Orlofs- og desemberuppbætur

Ég er með hlutaörorkulífeyri, hvað fæ ég mikið greitt í orlofs- og desemberuppbætur?

Fjárhæðir orlofs- og desemberuppbóta ráðast af tekjum, réttindahlutfalli og fjölda mánaða sem viðkomandi á rétt á greiðslum á árinu.

Orlofs- og desemberuppbætur árið 2026 eru að hámarki:

Einstaklingar með örorkulífeyri 137.857 kr.

Einstaklingar með hlutaörorkulífeyri 113.043 kr. (82%).

Orlofs- og desemberuppbætur lækka um 2% af tekjum umfram almennt frítekjumark viðkomandi greiðsluflokks.

Almenn frítekjumörk eru:

1.262.400 kr. vegna örorku- og hlutaörorkulífeyris.

Ef réttur er á örorkulífeyri eða hlutaörorkulífeyri reiknast fjárhæðin í samræmi við réttindahlutfall. Réttindahlutfall er reiknað út frá búsetu á Íslandi fram að samþættu sérfræðimati og framreiknað eftir atvikum til 67 ára aldurs.

Fjárhæð orlofs- og desemberuppbóta reiknast í hlutfalli við þann fjölda mánaða á árinu sem viðkomandi á rétt á greiðslum.

Dæmi

Einstaklingur með hlutaörorkulífeyri 6 mánuði árið 2026, með 90% réttindahlutfall og 2.000.000 kr. í árstekjur.