Fara beint í efnið

Tryggingastofnun: Orlofs- og desemberuppbætur

Hvernig reiknast orlofs- og desemberuppbætur ef ég á rétt á bæði sjúkra- og endurhæfingargreiðslum og örorkulífeyri á árinu?

Orlofs- og desemberuppbætur reiknast þá í hlutfalli við fjölda þeirra mánaða sem þú átt rétt á greiðslu viðkomandi greiðsluflokks. Ef þú færð sjúkra- og endurhæfingargreiðslur í 4 mánuði og örorkulífeyri í 8 mánuði þá er greiðsluréttur orlofs- og desemberuppbóta vegna sjúkra- og endurhæfingargreiðslna 33% og vegna örorkulífeyris 66%.