Tryggingastofnun: Orlofs- og desemberuppbætur
Hvernig reiknast orlofs- og desemberuppbætur ef ég fæ ekki greitt alla mánuði árið 2026?
Eigi einstaklingur rétt til örorku-, eða hlutaörorkulífeyris eða sjúkra- og endurhæfingargreiðslna hluta úr ári eru orlofs- og desemberuppbætur reiknaðar í hlutfalli við fjölda þeirra mánaða á árinu sem viðkomandi á greiðslurétt.
Dæmi:
Einstaklingur sem er í endurhæfingu og hefur fengið sjúkra- og endurhæfingargreiðslur ákvarðaðar frá 1. janúar til 30. september 2026 á rétt á 75% af orlofs- og desemberuppbótum ársins. Ef hann hefur þörf fyrir frekari endurhæfingu og fær síðar sjúkra- og endurhæfingargreiðslur ákvarðaðar út árið bætast 25% við fyrri greiðslurétt orlofs- og desemberuppbóta.