Orlofs- og desemberuppbætur - Örorkulífeyrir
Orlofs- og desemberuppbætur eru að hámarki 137.857 kr. árið 2026 til einstaklinga með örorkulífeyri. Einstaklingar með hlutaörorkulífeyri geta átt rétt á 82% af þeirri fjárhæð eða 113.043 kr.
Orlofs- og desemberuppbætur lækka um 2% af tekjum umfram almennt frítekjumark. Almennt frítekjumark örorku- og hlutaörorkulífeyris er 1.264.400 kr.
Orlofsuppbótin er 40% af fjárhæðinni sem viðkomandi á rétt á og desemberuppbótin 60%.
Orlofsuppbót er greidd 1. júlí og desemberuppbót 1. desember.
Fjárhæð orlofs- og desemberuppbóta reiknast í samræmi við réttindahlutfall og fjölda mánaða á árinu sem viðkomandi á rétt á greiðslum.
Ekki þarf að sækja um þessar uppbætur, þær eru reiknaðar sjálfkrafa hjá þeim sem eiga rétt á þeim.
Hér fyrir neðan má nálgast svör við algengum spurningum varðandi greiðslurétt orlofs- og desemberuppbóta.
Orlofs- og desemberuppbætur - algengar spurningar
Þjónustuaðili
Tryggingastofnun