Fara beint í efnið

Unnið er að gerð fræðsluvefs fyrir ungt fólk um geðheilbrigði. Markmiðið með vefsíðunni er að ungmenni geti fengið upplýsingar um heilsu og líðan. Á síðunni verða líka hagnýt ráð, sjálfshjálparúrræði, æfingar og upplýsingar um snemmtækan stuðning og úrræði ef á þarf að halda.

Efni síðunnar mun byggja á gagnreyndu fræðsluefni en fyrirmyndin er meðal annars danska vefsíðan Mindhelper.dk. Efnisflokkar á vefsíðunni verða meðal annars kvíði, depurð, ást og kynlíf, streita og einmanaleiki. Vefsíðan verður unnin af sérfræðingum á lýðheilsusviði embættis landlæknis í samstarfi við helstu sérfræðinga innanlands í hverjum málaflokki fyrir sig. Verkefnastjórnun er hjá Lífsbrú - miðstöð sjálfsvígsforvarna.

Vinnsla á rafrænu fræðsluefni af þessu tagi er hluti af vinnu við Aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi (aðgerð.5.3). Aðgerðin hefur verið fjármögnuð af heilbrigðisráðuneytinu. Í fyrstu útgáfu íslensku vefsíðunnar verður gefið út efni sem miðar að ungu fólki. Danska fyrirmyndin er líka með efni fyrir foreldra.

Stefnt er að því að vefsíðan verði sett í loftið síðla árs 2026.

Nafnasamkeppni - hugmynd að kennimerki

Sett hefur verið af stað nafnasamkeppni um gott nafn á nýja íslenska vefsíðu um geðheilbrigði fyrir ungt fólk. Einnig er kallað eftir hugmyndum að kennimerki. Senda má inn tillögu að nafni, kennimerki eða hvoru tveggja. Til að taka þátt þarf að fylla út formið hér að neðan:

Tillaga að kennimerki fyrir vefsíðu

Þjónustuaðili

Embætti land­læknis