Fara beint í efnið
Gulur september er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka sem vinna saman að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum.

Gulur september er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka sem vinna saman að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum. Það er von undirbúningshópsins að gulur september, auki meðvitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna, sé til merkis um kærleika, aðgát og umhyggju.

Á vefnum gulurseptember.is má finna dagskrána í Gulum september. Þar eru einnig upplýsingar um hvernig hægt er að taka þátt, um gula daginn, hugmyndafræði verkefnisins og aðstandendur þess.

Neðst á síðunni er hægt að óska eftir að viðburður verði birtur í viðburðadagatali Guls september.

Samvinna

Að gulum september standa fullltrúar frá: Embætti landlæknis, Geðhjálp, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Landspítala, Lífsbrú, Minningarsjóði Orra Ómarssonar, Píeta samtökunum, Rauða krossinum, SÁÁ, Sorgarmiðstöð, Þjóðkirkjunni og Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu.

Skrá viðburð í Gulum september

Dagskráin í Gulum september nær frá 1. september til 10. október og er viðburðadagatalið uppfært reglulega. Viltu standa fyrir viðburði og fá hann birtan í viðburðadagatali? Þá getur þú fyllt út skráningarformið.

Vinsamlegast skrifið stutta lýsingu á viðburði og látið fylgja hlekk á nánari upplýsingar

Setja má inn mynd eða kennimerki sem fylgt getur viðburðinum í dagatalinu.

Mynd / kennimerki

Þjónustuaðili

Embætti land­læknis