Fara beint í efnið

Dvalarleyfi vegna lögmæts og sérstaks tilgangs

Umsókn um dvalarleyfi

Dvalarleyfi á grundvelli lögmæts og sérstaks tilgangs er veitt í undantekningartilfellum, og aðeins þegar sérstakar aðstæður eru fyrir hendi, til einstaklinga sem uppfylla ekki skilyrði annarra dvalarleyfa.

Ákvæðið um dvalarleyfi á grundvelli lögmæts og sérstaks tilgangs felur í sér heimild til veitingar dvalarleyfis en ekki skyldu til leyfisveitingar undir neinum kringumstæðum. Dvalarleyfi er veitt eða því synjað á grundvelli heildarmats á aðstæðum viðkomandi og gögnum málsins.

Umsókn

Umsóknir er aðeins hægt að leggja fram á pappírsformi.

Þeim má skila í þar til gerðan póstkassa í anddyri Útlendingastofnunar eða með því að senda umsókn í bréfpósti. Áður en það er gert er nauðsynlegt að greiða fyrir umsókn með millifærslu í banka og þarf greiðslukvittun að fylgja umsókn til staðfestingar, sjá upplýsingar um greiðslu afgreiðslugjalds.

Útlendingastofnun (sjá á korti)
Dalvegi 18
201 Kópavogi
Ísland

Einnig er hægt að leggja inn umsókn og greiða fyrir í afgreiðslu Útlendingastofnunar eða hjá embættum sýslumanna utan höfuðborgarsvæðisins.

Kostnaður

Afgreiðslugjald er 16.000 krónur. Ógreidd umsókn verður endursend umsækjanda. Afgreiðslugjald er ekki endurgreitt þótt umsækjandi hætti við umsókn.

Dvöl á landinu meðan sótt er um

Lög

Dvalarleyfið er veitt á grundvelli 79. greinar laga um útlendinga.

Fjallað er um skilyrði dvalarleyfis á grundvelli lögmæts og sérstaks tilgangs í reglugerð um útlendinga.

Umsókn um dvalarleyfi

Þjónustuaðili

Útlend­inga­stofnun