Samningsaðilum er heimilt að rifta vistráðningarsamningi. Riftun skal vera skrifleg og tekur gildi um leið og hún hefur verið sannanlega birt hinum aðilanum. Senda skal Útlendingastofnun afrit af tilkynningu um riftun.
Riftun samnings er heimil vegna almenns ágreinings. Ef vistfjölskylda vill rifta samningi skal hún veita au pair 30 daga frest til að fara úr vistinni. Ef au pair vill rifta samningi skal hún veita vistfjölskyldu 15 daga frest.
Riftun samnings er heimil án tafar í eftirfarandi tilvikum:
Ef alvarlegar kringumstæður vistfjölskyldu eða au pair knýja á um það, til dæmis veikindi.
Vegna alvarlegs misferlis, annaðhvort vistfjölskyldu eða au pair, svo sem vegna brota á íslenskum lögum eða ákvæðum vistráðningarsamnings. Í vafatilvikum metur Útlendingastofnun hvort riftun er heimil á grundvelli alvarlegs misferlis.
Um misferli getur verið að ræða þegar samningsaðilar brjóta í verulegum atriðum gegn ákvæðum samnings um vistráðningu, til dæmis með því að misnota starfskrafta au pair eða ef au pair brýtur af sér í starfi eða sinnir ekki starfsskyldum sínum.
Au pair er heimilt að gera nýjan samning við aðra vistfjölskyldu. Samninginn skal leggja fram hjá Útlendingastofnun ásamt framfærslugögnum frá nýju vistfjölskyldunni.
Þjónustuaðili
Útlendingastofnun