Einkaflugmannspróf (PPL)
Próftaki verður að hafa lokið flugskólaprófi með fullnægjandi árangri (75%), áður en hann skráir sig til prófs hjá Samgöngustofu.
Skráning og greiðsla í próf
umsækjandi fyllir út umsókn
sækir um tegund prófs (PPL)
velur dagsetningu prófs
velur þau próf sem hann ætlar að taka og ýtt á "Bóka"
Við að ýta á "Bóka" er sæti tekið frá og niðurteljari birtist á síðunni. Eftir það hefur umsækjandi 30 mínútur til að klára skráningu og greiða fyrir próf
30 mínútur eru taldar niðursamkvæmt niðurteljara sem birtist á skráningarsíðu
staðfesting á skráningu er send í tölvupósti
Ef skráning klárast ekki innan 30 mínútna
sætisbókun fellur niður og skráning telst ógild
prófgjöld verða endurgreidd
Prófreglur
Eftirfarandi reglur gilda á bóklegum prófum og prófsýningum. Það er á ábyrgð próftaka að kynna sér prófreglur Samgöngustofu og fylgja þeim.
Próftaki verður að hafa lokið skólaprófi með fullnægjandi árangri (75%) áður en hann skráir sig til prófs hjá Samgöngustofu.
Útskrift úr einstaka skólaprófi hjá flugskóla gildir í 12 mánuði í hverju fagi og þarf nemandi að hefja próf hjá Samgöngustofu í því fagi innan þess tíma, fram að útskrift af námskeiði.
Staðfesting á próftökurétt nemanda, í hverju fagi fyrir hverja tilraun, verður að hafa borist Samgöngustofu áður en honum er heimiluð próftaka. Samgöngustofa sér um að staðfesta próftökurétt nemanda við flugskóla.
Fjölföldun eða dreifing á prófi eða spurningum úr prófi er með öllu óheimil. Prófin teljast trúnaðarmál á milli próftaka og Samgöngustofu.
Próftakar skulu vera kurteisir í hegðun gagnvart yfirsetufólki og öðru starfsfólki Samgöngustofu og fara eftir fyrirmælum þeirra varðandi próftöku í einu og öllu.
Prófstjóra og yfirsetufólki er heimilt að stöðva próf nemanda og víkja úr prófi hlíti nemandinn ekki þeim fyrirmælum sem honum eru gefin eða fari hann ekki eftir prófreglum.
Neysla á matvælum er ekki leyfileg í prófstofu. Leyfilegt er að vera með drykki í flöskum með tappa. Próftakar skulu hreinsa eftir sig rusl og skilja hreint við sig í prófstofu og biðsal eftir að prófum er lokið.
Eftirlitsmyndavélakerfi er í prófstofu til prófaeftirlits.
Próftaki verður að framvísa gildu persónuskilríki með mynd af próftaka áður en honum er heimilaður aðgangur að prófstað.
Slökkva skal á símum, snjallúrum og öðrum raftækjum og þau skilin eftir hjá yfirsetumanni.
Próftökum ber að skilja úlpur, derhúfur, húfur, töskur og pennaveski eftir hjá yfirsetumanni.
Forritanlegar reiknivélar eru ekki leyfðar. Undantekning á þeirri reglu er ef yfirsetumaður hefur yfirfarið og endurstillt reiknivélina með „factory reset“. Ekki er tekin ábyrgð á reiknivélum nemenda eftir að hún hefur verið endurstillt með „factory reset“.
Hægt er að taka bókleg einkaflugmannspróf (PPL) á íslensku eða ensku. Próftaki velur tungumál áður en próftaka hefst.
Aðeins er í boði að taka atvinnuflugmannspróf (ATPL) á ensku.
Það er á ábyrgð próftaka að velja rétt próffag og tungumál í upphafi prófs. Ekki er mögulegt að leiðrétta slíkt eftir að próf er hafið og mun einkunn úr prófi gilda.
Óheimilt er að skrifa á krassblöð áður en ýtt er á „start“-hnapp og próf hefst.
Öll samskipti milli próftaka á meðan prófi stendur eru bönnuð, þar til próftakar hafa yfirgefið prófstað.
Próftaki skal eingöngu horfa á sinn eigin tölvuskjá á meðan prófi stendur.
Ekki er heimilt að opna önnur forrit eða vafra í tölvu á meðan prófi stendur.
Aðeins skal nota þau hjálpargögn í prófi sem Samgöngustofa hefur gefið leyfi fyrir.
Samgöngustofa sér próftökum fyrir enskri-enskri orðabók þreyti þeir próf á ensku.
Próftakar mega koma með eftirfarandi fylgigögn í próf:
Almennt
Skriffæri
Óforritanleg reiknivél
Flugreiknistokkur (mekkanískur/óforritanlegur)
Gráðubogi (plotter)
Áttaviti og sirkill
Reglustika
ATPL
Mass and Balance: CAP 696.
Flight Planning & Monitoring: Jeppesen General Student Pilot Route Manual (GSPRM 2017) og CAP 697.
General Navigation: Jeppesen General Student Pilot Route Manual (GSPRM 2017).
Performance: CAP: 698.
PPL
Sjónflugskort í 070-Flight performance & planning og 090-Navigation.
Nauðsynleg fylgigögn: Próftakar þurfa að hafa með sér Jeppesen GSPRM 2017 (ATPL), eða Íslenskt Sjónflugskort (PPL), í próf í viðkomandi próffögum.
Öll önnur gögn eru óheimil og geta túlkast sem brot á prófreglum.
Fylgigögn sem próftaki kemur með í próf mega ekki innihalda lausnir eða yfir/undirstrikanir á gröfum, kortum eða nokkurs konar glósum. Skyndiskoðanir verða framkvæmdar af yfirsetumönnum og gögn sem brjóta þessar reglur gerð upptæk.
Próftaki skal alltaf merkja krassblöð með nafni og skila inn til yfirsetumanns eftir hvert próf.Skráningarblaði og fylgigögnum skal ávallt skila til yfirsetumanns þegar síðasta próf dagsins hefur verið klárað.
Einkunnir berast próftaka í tölvupósti eigi síðar en viku eftir síðasta próf í próftörn.
Brot á þeim reglum sem tilgreindar eru hér geta leitt til brottvísunar úr prófi og ógildingu einstaka prófs eða allra prófa í prófsetu.
Verði próftaki uppvís um svindl varðar það ógildingu á öllum einkunnum hans hjá Samgöngustofu og a.m.k. 12 mánaða próftökubanni sem gildir í öllum aðildarríkjum EASA
Próftaki telst hafa lokið bóklegum prófum Samgöngustofu standist hann próf í öllum próffögum, með lágmarkseinkunn 75%, innan tilskilins tímafrests. Það er að öðrum skilyrðum uppfylltum, sjá hér fyrir neðan. Einkunnir er gefnar með tveim aukastöfum (t.d. 75,00). Einkunnir eru ekki námundaðar upp og ekki er dregið niður fyrir röng svör.
Próftaka ber að ljúka öllum prófum með lágmarksárangri 75% innan 18 mánaða (talið frá enda þess mánaðar sem hann þreytti sitt fyrsta próf).
Próftaki fær að hámarki fjórar tilraunir í hverju próffagi.
Próftaki í bóklegum ATPL prófum fær að hámarki sex prófsetur (sittings) til þess að ljúka öllum prófum. Athugið að enginn hámarksfjöldi er á setum í PPL prófum.
Próftaki í bóklegum ATPL prófum þarf að standast öll lokapróf og lokanámsmat í Area 100–KSA áður en hann getur hafið fyrstu tilraun við sitt síðasta próffag á prófum Samgöngustofu.
Útskrift úr bóklegum ATPL prófum Samgöngustofu gildir til útgáfu CPL/IR skírteinis í 36 mánuði, frá og með þeim degi sem próftaki lýkur öllum bóklegum prófum.
Útskrift úr bóklegum PPL prófum gildir til útgáfu PPL skírteinis í 24 mánuði, frá og með þeim degi sem próftaki lýkur öllum bóklegum prófum.
Hafi próftaki áður reynt próftöku bóklegra prófa hjá Samgöngustofu og fallið á prófunum í heild sinni skal nemandi hafa samband við flugskóla og fá mat á upprifjun og/eða endurþjálfun á námsefni eins og þörf er á.
Staðfesting þess efnis frá flugskóla þarf að berast Samgöngustofu áður en nemanda er veittur próftökuréttur og fær að þreyta bókleg próf Samgöngustofu á ný.
Próftökum í bóklegum prófum hjá Samgöngustofu er heimilt að sækja um prófsýningu eftir hverja prófsetu.
Prófin verða sýnd á tölvu.
Aðeins verða birt svör við þeim spurningum sem var rangt svarað á prófi.
Einungis próftökum sem þreyttu próf í síðustu prósetu geta sótt um prófsýningu hverju sinni.
Næstu prófsýningar
Sjá nánar um prófsýning fyrir einkaflugmanns- og atvinnuflugmannspróf
Þær kröfur sem gerðar eru um bókleg próf vegna útgáfu skírteina voru innleiddar með
Reglugerð nr. 180/2014.
Nánari upplýsingar má finna í reglugerð (ESB) 1178/2011, útg. af EASA.
Próftakar mega tilkynna veikindi eða önnur forföll með því að senda tölvupóst á: prof@icetra.is. Slíkt er þó óþarft nema í undantekningartilfellum.
Ekki er gerð krafa um að próftakar tilkynni veikindi eða skili inn læknisvottorði.
Prófgjöld fást ekki endurgreidd eftir að skráningarfrestur í próf er liðinn, þó svo að um veikindi sé að ræða
Nemendur í erlendum flugskólum sem vilja sækja um bókleg próf hjá Samgöngustofu þurfa að senda inn sér umsókn með góðum fyrirvara áður en próftaka er heimiluð. Sækja þarf um í tölvupósti og ganga frá greiðslu tímagjalds fyrir vinnu sérfræðings eigi síður en 2 vikum fyrir fyrsta próf í fyrstu setu umsækjanda.
Umsækjandi þarf einnig að tryggja sér sæti í prófum hverju sinni. Skráning og greiðsla prófgjalda fer fram í gegnum rafrænt bókunar- og greiðslukerfi.
Sé framangreindum skilyrðum ekki uppfyllt verður umsókn hafnað
Tímagjald fyrir vinnu sérfræðings er innheimt skv. gjaldskrá áður en nemandi í erlendum flugskóla hefur nýja tilraun við bókleg próf Samgöngustofu. Um er að ræða eingreiðslugjald fyrir þann tíma sem það tekur stofnunina að afla aukinna upplýsinga um umsækjanda og flugskóla umsækjanda, samskipti við erlend flugmálayfirvöld, öflun staðfestingar á próftökurétt í hverju próffagi fyrir hverja prófsetu, öflun gagna, mat á gögnum, utanumhald og önnur umfjöllun sérfræðings. Upplýsingar um kostnað við þessa vinnu eru veittar þegar umsókn hefur verið móttekin af Samgöngustofu í gegn um tölvupóst. Miðað er við meðaltal tímafjölda sem þessi vinna tekur á prófatímabili nemenda (sex setur/18 mánuðir).
Þjónustuaðili
Samgöngustofa