Fara beint í efnið

Prófsýning flugprófa

Umsókn um prófsýningu

Próftökum í bóklegum prófum hjá Samgöngustofu er heimilt að sækja um prófsýningu eftir hverja prófsetu.

Fylla þarf út  umsóknareyðublað fyrir prófsýningu og útfyllt umsókn send í viðhengi með tölvupósti á netfangið prof@icetra.is. Einnig er hægt að skila inn útfylltri umsókn í móttöku Samgöngustofu, Ármúla 2, 108 Reykjavík.

Næstu prófsýningar

Prófsýning fyrir einkaflugmanns- og atvinnuflugmannspróf verður haldin 8. maí 2024 í húsnæði Samgöngustofu, Ármúla 2, 108 Reykjavík

  • Prófsýning hefst kl. 10:00 og lýkur stundvíslega kl. 12:00.

  • Takmarkaður fjöldi getur skoðað próf í einu.

  • Athugið að umsækjendum gæti verið úthlutað tíma til að skoða sín próf innan tilgreinds tímabils.

Greiðsla

Prófsýningargjald er 624 kr fyrir hvert próf sem sótt er um að skoða. Hægt er að greiða fyrir prófsýningu með:

  • Símgreiðslu. Samgöngustofa  símanúmer 480 6000 - greitt með kreditkorti.

  • Millifærsla. Reikningur Samgöngustofu: 0515-26-131260, kt. 540513-1040. Setja þarf kennitölu umsækjanda í skýringu og kvittun send með tölvupósti á prof@icetra.is.

Umsókn og greiðsla verða að berast í síðasta lagi 6. maí 2024.  Ekki er tekið við umsóknum um prófsýningu eftir þann tíma. 

Vinsamlegast athugið að ekki er hægt að ganga frá greiðslu prófsýningargjalda í afgreiðslu Samgöngustofu á sýningardag.

Prófsýningin

  • Prófin verða sýnd á tölvu.

  • Aðeins verða birt svör við þeim spurningum sem var rangt svarað á prófi.

  • Einungis próftökum sem þreyttu próf í síðustu prófsetu geta sótt um prófsýningu hverju sinni.

  • Athugið að umsækjendum gæti verið úthlutað tíma til að skoða sín próf innan tilgreinds tímabils. 

  • Umsækjendur hafa 15 mínútur til að skoða hvert próf (mest 60 mínútur samtals)

Umsókn um prófsýningu

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa