Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þau sem fá atvinnuleysisbætur þurfa að:

  1. staðfesta atvinnuleit í hverjum mánuði,

  2. tilkynna um tekjur, hlutastörf og verktakavinnu,

  3. láta vita ef aðstæður breytast.

Þannig er hægt að koma í veg fyrir að þurfa að endurgreiða of háar bætur eða að greiðslur séu felldar niður.

Það þarf að staðfesta atvinnuleit þó að umsókn sé enn í vinnslu og líka þó greiðsur hafi verið felldar niður vegna brota á reglum.

Tilkynna vinnu og tekjur

Aukatekjur og aðrar greiðslur geta haft áhrif á upphæð atvinnuleysisbóta.

Ef einstaklingur lætur ekki vita um tekjur fær viðkomandi of mikið borgað og þarf svo að endurgreiða upphæðina. Alla vinnu á að tilkynna á Mínum síðum Vinnumálastofnunar.

Aðrar tekjur sem þarf að tilkynna:

  • Greiðslur úr lífeyrissjóði

  • Fjármagnstekjur, eigin eða sameiginlegar með maka

  • Tekjur frá Tryggingastofnun

Aðstæður breytast

Ýmsar breytingar geta haft áhrif á rétt til atvinnuleysisbóta og þess vegna þarf að láta vita af þeim. Ef það er ekki gert geta greiðslur verið felldar niður eða stöðvaðar varanlega.

Þessi upplýsingaskylda á líka við þegar greiðslur hafa verið felldar niður vegna brota á reglum.

Biðtími/Viðurlög: Afleiðingar vegna brota á reglum

Þegar greiðslur eru felldar niður gildir það frá þeirri dagsetningu sem úrskurður kemur.

Umsókn um atvinnuleysisbætur

Þjónustuaðili

Vinnu­mála­stofnun