Fara beint í efnið

Einstaklingur getur átt rétt á atvinnuleysisbótum í allt að 24 mánuði frá og með 1. júlí 2026. Þeir sem hafa sótt um atvinnuleysisbætur fyrir þann tíma eiga þó rétt á allt að 30 mánuðum. Þetta kallast bótatímabil einstaklings. Þegar einstaklingur sækir aftur um atvinnuleysisbætur gæti viðkomandi komið inn á sama bótatímabil.

Bótatímabil

Bótatímabil er ekki framlengt, jafnvel þó að:

  • bíða þurfi eftir fyrstu greiðslu bóta,

  • greiðslum sé frestað vegna brota á reglum,

  • bætur séu greiddar í minna en 100% hlutfalli,

  • veikindi standi yfir í styttri tíma. Aðrar reglur gilda ef einstaklingur verður óvinnufær vegna sjúkdóms eðs slyss.

Umsókn

Einstaklingur sækir um atvinnuleysisbætur á Mínum síðum atvinnuleitenda á vef Vinnumálastofnunar, rétt eins og þegar sótt er um í fyrsta sinn.

Endurkoma á sama bótatímabil

Hafa ber í huga að ef einstaklingur sækir um atvinnuleysisbætur og hefur áður verið á atvinnuleysisskrá getur verið að sama bótatímabil gildi. Þá á einstaklingur rétt á atvinnuleysisbótum fyrir þá mánuði sem eru eftir af bótatímabilinu. Tekjutenging er aðeins greidd einu sinni á hverju bótatímabili.

Hvernig sé ég stöðu bótatímabils hjá mér?

Á Mínum síðum undir Mín umsókn getur þú séð eftirstöðvar af bótarétti. Neðst á greiðsluseðlum er einnig sýnd staða bótatímabils.

Réttur til nýs bótatímabils

Réttur til nýs bótatímabils getur átt við að uppfylltum þessum skilyrðum:

Fyrra bótatímabil klárað

Sá sem sækir aftur um atvinnuleysisbætur, hefur verið áður á skrá og klárað 24/30 mánaða tímabil:

  • 24 mánuðir verða að hafa liðið frá síðustu greiðslu bóta.

  • Umsækjandi verður að hafa unnið á íslenskum vinnumarkaði í að minnsta kosti 6 mánuði frá því atvinnuleysisbætur voru greiddar síðast. Starfshlutfall þarf að hafa verið 25% eða meira.

Dæmi: Einstaklingur sem klárar bótarétt sinn en starfar svo að lágmarki 6 mánuði á síðustu 2 árum eftir það, hefur áunnið sér nýtt bótatímabil.

Fyrra bótatímabil ekki klárað

Sá sem sækir aftur um atvinnuleysisbætur og hefur verið áður á skrá og ekki klárað fyrra bótatímabil:

  • 24 mánuðir verða að hafa liðið frá síðustu greiðslu bóta.

  • Umsækjandi verður að hafa unnið á íslenskum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því atvinnuleysisbætur voru greiddar síðast. Starfshlutfall þarf að hafa verið 25% eða meira.

Sá tími sem einstaklingur er í starfi og er afskráður af atvinnuleysisskrá telst ekki hluti bótatímabilsins.

Dæmi: Einstaklingur sem fékk greiddar atvinnuleysisbætur í eitt ár en starfaði svo samfellt í tvö ár eftir það hefur áunnið sér nýtt bótatímabil.

Óskað eftir rökstuðningi

Hægt er að óska eftir rökstuðningi á útreikningi bótaréttar. Það er gert með því að senda skilaboð í gegnum Mínar síður.

Endurútreikningur

Einstaklingur sem hefur fengið greiddar atvinnuleysisbætur og kemur aftur inn á sama bótatímabil getur óskað eftir endurútreikningi. Þá er miðað við nýja starfstímabilið og þann hluta eldra tímabils sem nægir til að samtals verði miðað við tólf mánaða tímabil.

Skilyrði

Að hafa unnið samfellt lengur en þrjá mánuði áður en sótt er um aftur á sama bótatímabili.

Umsókn um atvinnuleysisbætur

Þjónustuaðili

Vinnu­mála­stofnun