Æskulýðssjóður
Markmið sjóðsins er að auka möguleika æskulýðsfélaga og samtaka á að bjóða fjölbreyttari starfsemi fyrir félaga sína.
Verkefnin þurfa að falla að markmiðum Æskulýðslaga. Þar segir að með æskulýðsstarfi sé átt við skipulagða félags- og tómstundastarfsemi þar sem börn og ungmenni starfa saman í frístundum sínum að hugsjónum, markmiðum og áhugamálum sem þau sjálf meta að verðleikum.
Lögð er áhersla á að styrkja almennan verkefniskostnað en ekki launakostnað.
Umsóknum skal skila á rafrænu formi í gegnum umsóknarkerfi Rannís (Mínar síður Rannís). Ekki er tekið við umsóknum á öðru formi.
Auglýst er eftir umsóknum tvisvar á ári og eru umsóknarfrestir í febrúar og október.
Tekið er á móti fyrirspurnum í netfanginu aeskulydssjodur@rannis.is eða í síma 515 5833.
Rannís hefur umsjón með Æskulýðssjóði fyrir hönd mennta- og barnamálaráðuneytis.
Þjónustuaðili
Rannsóknamiðstöð Íslands