Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Staða

Lokað fyrir umsóknir

Frestur var til 16. febrúar 2026

Umsóknartímabil

02.01.2026 - 16.02.2026

Styrkjaflokkun

Innlent, Æskulýðsstarf og íþróttir

Tegund

Fjármögnun

Þjónustuaðili

Rannsóknamið­stöð Íslands

Verkefnastyrkur Æskulýðssjóðs

Æskulýðssjóður veitir styrki til verkefna á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka sem gera þeim kleift að bjóða fjölbreyttari starfsemi fyrir félaga sína.

Staða

Lokað fyrir umsóknir

Frestur var til 16. febrúar 2026

Umsóknartímabil

02.01.2026 - 16.02.2026

Styrkjaflokkun

Innlent, Æskulýðsstarf og íþróttir

Tegund

Fjármögnun

Verkefnastyrkur Æskulýðssjóðs

Lokað fyrir umsóknir / Frestur var til 16. febrúar 2026

Styrkir Æskulýðssjóðs eru ætlaðir til að auka möguleika æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka til að bjóða fjölbreyttari starfsemi fyrir félaga sína. Styrkir eru veittir til verkefna sem unnin eru fyrir börn og ungmenni og/eða með virkri þátttöku þeirra, til þjálfunar forystufólks,, leiðbeinenda og sjálfboðaliða, til nýsköpunar og til samstarfsverkefna æskulýðsfélaga og -samtaka.

Hverjir geta sótt um?

Æskulýðsfélög og -samtök sem vinna með börnum og ungmennum á aldrinum 6-25 ára.

Hvernig er sótt um?

Sækja skal um rafrænt í gegnum umsóknarkerfi Rannís.

Til að nálgast umsóknarformið þarf umsækjandi að tengjast umsóknarkerfi Rannís með rafrænum skilríkjum.
Leiðbeiningar um innskráningu og hvernig ný umsókn er stofnuð (ef opið er fyrir umsóknir). 

Mikilvægt er að hafa í huga að við gerð kostnaðaráætlunar að í eyðublaði er átt við heildarkostnað verkefnisins. Ef sótt er um styrk eða framlög til annarra skal tilgreina það í umsókn.  Mikilvægt er að fara vel yfir kostnaðaryfirlit áður en umsókn er send inn. 


Svör við spurningum

Tekið er á móti fyrirspurnum í netfanginu aeskulydssjodur@rannis.is eða í síma 515 5833.

Þjónustuaðili

Rannsóknamið­stöð Íslands