Æskulýðssjóður
Leiðbeiningar vegna umsókna
Umsóknum skal skila á rafrænu formi í gegnum umsóknarkerfi Rannís (Mínar síður Rannís). Ekki er tekið við umsóknum á öðru formi.
Umsókn um styrk úr Æskulýðssjóði skal skila í gegnum rafrænt umsóknarkerfi Rannís - Mínar síður
Til að nálgast umsóknarformið þarf að tengjast umsóknarkerfi Rannís með rafrænum skilríkjum eða auðkennisappinu (sérstaklega ef notandi er elendis)
Ekki er nauðsynlegt að umsækjandi sé innskráður notandi í umsóknarkerfinu en það er heppilegt ef hægt er. Einstaklingur getur verið innskráður notandi í umsóknarkerfi en tilgreint annan umsækjanda í umsókn
Umsókn má vera á íslensku eða ensku
Eftir að umsókn er send sést hún undir „Umsóknir->Innsendar“ á mínum síðum þess notanda sem sendi.
Ráðleggingar til umsækjenda
Mikilvægt er að umsækjendur kynni sér vel allar leiðbeiningar vegna umsókna í sjóðinn.
Stofnið umsókn tímanlega í umsóknarkerfinu.
Ekki skila umsókn á síðasta degi.
Fjárhagsáætlun - heildarkostnaður og tekjur verkefnis
Við gerð fjárhagsáætlunar í umsókn skal hafa í huga að átt er við heildarkostnað verkefnis.
Eigið framlag getur verið í formi vinnu.
Mismunur kostnaðar og fjármögnunar í umsókn er umsóttur styrkur.
Ef sótt er um styrk eða framlög til annarra skal tilgreina það í umsókn.
Mikilvægt er að fara vel yfir fjárhagsáætlun áður en umsókn er send inn.
Þjónustuaðili
Rannsóknamiðstöð Íslands