Æskulýðssjóður
Greiðslur og skýrsluskil
Greiðslur
Greiðslur taka mið af upphæð styrks.
Umsækjendur sem fá úthlutað styrk fá sendan tölvupóst þar sem fram koma þeir skilmálar sem styrkveitingunni fylgja. Með því að svara, telst umsækjandi hafa samþykkt skilmálana og styrkurinn verður lagður inn á reikning viðkomandi umsækjanda.
Skýrslur
Sjá upplýsingar í undirrituðum skilmálum styrks.
Lokaskýrslu skal skilað sem fyrst eftir að verkefni lýkur en eigi síðar en tveimur mánuðum eftir tilgreindan lokadag í skilmálum styrks.
Áfangaskýrslu skal skilað ef sótt er um styrk úr sjóðnu mað nýju áður en lokaskýrslu vegna áður veitts styrks hefur verið skilað.
Sá notandi sem sendi umsókn getur nálgast skýrsluform verkefnis á „sínum síðum“ Rannís.
Ef með þarf er hægt að flytja skýrsluform á annan notanda. Beiðni um það er send á netfang sjóðsins; ithrottasjodur@rannis.is.
Lýsing á framkvæmd verkefnis til opinberrar birtingar í lokaskýrslu birtist með færslu verkefnis á gagnatorgi Rannís.
Þjónustuaðili
Rannsóknamiðstöð Íslands