Æskulýðssjóður
Mat og úthlutun
Skilyrði úthlutunar er að verkefni falli að markmiðum Æskulýðslaga. Þar segir að með æskulýðsstarfi sé átt við skipulagða félags- og tómstundastarfsemi þar sem börn og ungmenni starfa saman í frístundum sínum að hugsjónum, markmiðum og áhugamálum sem þau sjálf meta að verðleikum.
Mats- og úthlutunarferlið
Stjórn Æskulýðssjóðs fer yfir allar umsóknir sem teljast hæfar og metur þær og gerir tillögu um úthlutun. Mennta- og barnamálaráðherra tekur formlega ákvörðun um úthlutun út frá tillögu stjórnar.
Umsóknir eru metnar samkvæmt Matskvarða Æskulýðssjóðs
Gildi og mikilvægi verkefnis með tilliti til þeirra markmiða sem Æskulýðssjóði eru set
Líkum á því hægt sé að ná þeim markmiðum er verkefnið miðar að.
Starfsferli og faglegum eða fræðilegum bakgrunni umsækjenda og annarra þátttakenda með tilliti til þeirra krafna sem verkefnið gerir til þeirra.
Mat á umsóknum skal einkum byggjast á eftirtöldum sjónarmiðum.
Umsóknir eru meðhöndlaðar sem trúnaðargögn.
Reglur 3. gr. stjórnsýslulaga gilda um vanhæfi stjórnarmanna/matsmanna.
Allir umsækjendur fá tilkynningu um hvort þeir hafi hlotið styrk eða ekki.
Gefin er út fréttatilkynning um úthlutun (hverjir hlutu styrk, nafn verkefnis og upphæð).
Þjónustuaðili
Rannsóknamiðstöð Íslands