Fara beint í efnið

Hlutverk Æskulýðssjóðs er að styrkja eftirtalin verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka:

  • Sérstök verkefni sem unnin eru fyrir börn og ungmenni og/eða með virkri þátttöku þeirra. 

  • Þjálfun forystufólks, leiðbeinenda og sjálfboðaliða.

  • Nýsköpun og þróunarverkefni.

  • Samstarfsverkefni æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka.

Ekki er heimilt að styrkja árvissa né fasta viðburði í félagsstarfi svo sem þing, mót eða þess háttar atburði né ferðir hópa.