Fara beint í efnið

Sækja um vegabréf

Þú getur sótt um nýtt vegabréf fyrir þig og einstaklinga í þinni forsjá á Mínum síðum. Í umsókninni forskráir þú upplýsingar og þarft svo aðeins að mæta í myndatöku hjá embætti sýslumanna til að hægt sé að gefa út vegabréfið.

Forskráning umsóknar um vegabréf

Skilyrði

  • Að gildistími núverandi vegabréfs sé minni en 6 mánuðir. Annars þarf að sækja um hjá sýslumanni. Sjá upplýsingar um gildistíma vegabréfa á Mínum síðum.

  • Að þú sért með rafræn skilríki.

Ef umsækjandi á ekki opinbert skilríki vegabréf, nafnskírteini eða ökuskírteini þarf umsækjandi ásamt tveim vitundavottum að koma á umsóknarstað sýslumanns, fylla út sannvottun einstaklings og votta í viðurvist að umsækjandi sé sá sem hann segist vera. Vitundavottar þurfa að hafa meðferðis opinber skilríki, vegabréf, nafnskírteini eða ökuskírteini.

Sótt um fyrir barn

Ef tveir aðilar fara með forsjá barns þurfa:

  • báðir aðilar að veita samþykki fyrir útgáfu nýs vegabréfs.

  • báðir forsjáraðilar að vera með rafræn skilríki.

Umsóknarferli

  1. Forskrá umsókn á Ísland.is og greiða kostnað.

    • Ef um barn er að ræða sækir annar forsjáaðili um vegabréfið og greiðir. Hinn aðilinn fær sjálfkrafa beiðni um að samþykkja umsóknina. Samþykkið þarf að berast innan 7 daga, annars rennur umsókn út og er endurgreidd sjálfkrafa til greiðanda.

  2. Mæta í myndatöku innan 30 daga á umsóknarstaði sýslumanna um land allt. Hægt er að

    bóka tíma á höfuðborgarsvæðinu.

    • Alltaf þarf að framvísa löggildu skilríki, eldra vegabréfi, íslensku ökuskírteini eða nafnskírteini.

    • Nóg er að annar forsjáraðili mæti með barni undir 18 ára. Forsjáraðili þarf að sýna skilríki. Ef þriðji aðili kemur með barninu þarf hann að framvísa umboði.

Ef ekki er mætt í myndatöku innan 30 daga, eða hætt er við umsókn að þeim tíma liðnum, þarf umsækjandi sjálfur að óska eftir endurgreiðslu á endurgreidsla@island.is.

Ekki er hægt að forskrá umsókn ef meira en 6 mánuðir eru eftir af gildistíma eldra vegabréfs

Íslendingar erlendis

Íslendingar sem staddir eru erlendis og þurfa á vegabréfi að halda snúa sér til sendiráða eða ræðismanna Íslands.

Afhending og afgreiðslutími

Umsókn og framleiðsla vegabréfa er allt að 6 virkir dagar. Sendingartími bætist við afhendingartíma fyrir umsækjendur á landsbyggðinni.

Hægt er að fá vegabréf afhent á þrjá vegu:

  • Sótt í afgreiðslu Þjóðskrár, Borgartúni 21, 105 Reykjavík. Opnunartími er frá 10-15 alla virka daga.

  • Sótt á umsóknarstað á sýsluskrifstofum um allt land

  • Erlendis í sendiráði eða ræðismanni.

Þegar vegabréf barna eru sótt þarf forsjáraðili að sýna skilríki. Börn þurfa ekki að koma með. Ef þriðji aðili sækir þarf hann að framvísa umboði.

Kostnaður

Almenn afgreiðsla vegabréfa:

  • 18 til 66 ára: 14.000 krónur.

  • Börn, aldraðir, öryrkjar: 6.000 krónur.

Hraðafgreiðsla:

  • 18 til 66 ára: 28.000 krónur.

  • Börn, aldraðir, öryrkjar: 12.000 krónur.

Þjónustuaðili

Sýslu­menn

Sýslumenn

Höfuð­borg­ar­svæðið

Mán. til fim. 8:30 - 15
Fös. 8:30 - 14

Vest­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Vest­firðir

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 13:30

Norð­ur­land vestra

Mán. til fös. 9 - 15

Norð­ur­land eystra

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Aust­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9-14

Suður­land

Mán. til fös. 9 - 15

Vest­manna­eyjar

Mán. til fim. 9:15 - 15
Fös. 9:15 - 14

Suðurnes

Mán. til fös. 8:30 - 15