Fara beint í efnið

Lög um tímabundinn stuðning við útgáfu bóka á íslensku tóku gildi 1. janúar 2019 og samkvæmt þeim eiga útgefendur rétt á endurgreiðslu á 25% hluta kostnaðar vegna bóka sem útgefnar eru frá þeim degi.

2025 – endurgreiddar 429 milljónir

Endurgreiðsla ársins 2025 nam um 429 m.kr. Voru 769 umsóknir greiddar út, þar af 66 frá árinu áður.

Mikilvægt er að hafa í huga að útgefendur hafa níu mánuði frá útgáfudegi til að sækja um endurgreiðslu; þess vegna er stór hluti þeirra bóka sem afgreiddar voru á árinu gefnar út árið áður.

Á eftirfarandi töflum má sjá frekari greiningu eftir kostnaðarliðum, útgáfuformi, fjölda umsókna, greiðslna til hvers útgefanda og endurgreiðslu á hvern titil (allar upplýsingar birtar með fyrirvara um innsláttarvillu).

Tafla 1: Samantekt á kostnaðarliðum. Tafla 2-3: Greining og samantekt eftir útgáfuformi/tegund (samkvæmt umsóknum) og kostnaðarliðum. Tafla 4: Fjöldi umsókna og greiðslna eftir útgefendum. Tafla 5: Endurgreiðsla á hvern titil.

Úthlutanir fyrri ára eru á eldra vefsvæði Rannís