Starfatorg - laus störf hjá ríkinu
Leit
445 störf fundust
Skrifstofustörf
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins
Bókari
Við leitum að öflugum einstaklingi til að ganga til liðs við frábæran hóp starfsfólks ÁTVR. Viðkomandi þarf að vera jákvæður og metnaðarfullur með reynslu og þekkingu í bókhaldi
Höfuðborgarsvæðið
Sérfræðistörf
Þjóðskjalasafn Íslands
Skjalavörður
Þjóðskjalasafn Íslands óskar eftir að ráða þjónustulundaðan skjalavörð til starfa á miðlunar- og rannsóknarsvið safnsins. Starfið snýr að afgreiðslu og svörun fyrirspurna frá viðskiptavinum Þjóðskjalasafns ásamt þátttöku í öðrum verkefnum safnsins eftir þörfum og atvikum.
Höfuðborgarsvæðið
Sumarstörf
Vinnueftirlitið
Sumarstarf - Þjónustumiðja Vinnueftirlitsins
Viltu ganga til liðs við okkur hjá Vinnueftirlitinu? Við leitum að sjálfstæðum og drífandi einstaklingi í sumarstarf í þjónustumiðjunni okkar. Um tímabundið starf er að ræða sumarið 2026. Jákvætt, opið og lausnarmiðað hugarfar eru eiginleikar sem við leitum að.
Höfuðborgarsvæðið
Önnur störf
Mannréttindastofnun Íslands
Ráðgjafi í réttindagæslu fyrir fatlað fólk hjá Mannréttindastofnun Íslands
Mannréttindastofnun Íslands leitar að einstaklingi til að starfa við réttindagæslu fatlaðs fólks. Starfið felur í sér bein og fagleg samskipti við einstaklinga, þar á meðal símtöl, vettvangsheimsóknir, leiðbeiningar og eftirfylgni í málum sem varða réttindi einstaklinga.
Höfuðborgarsvæðið
Sérfræðistörf
Mannréttindastofnun Íslands
Sérfræðingur í rekstri og upplýsingamiðlun - Mannréttindastofnun Íslands
Mannréttindastofnun Íslands auglýsir lausa til umsóknar fjölbreytta stöðu sérfræðings. Starfið felur í sér lykilverkefni tengd rekstri, fjármálum, áætlanagerð og upplýsingamiðlun. Við leitum að drífandi og fjölhæfum einstaklingi með breiða þekkingu og reynslu og hugarfar grósku.
Höfuðborgarsvæðið
Stjórnunarstörf
Lyfjastofnun
Deildarstjóri gæðamats
Lyfjastofnun óskar eftir að ráða deildarstjóra gæðamats, sem heyrir undir svið mats og skráningar lyfja. Við leitum að drífandi, sveigjanlegum og jákvæðum leiðtoga til að leiða öflugan hóp starfsfólks.
Höfuðborgarsvæðið
Sumarstörf
Náttúruverndarstofnun
Þjónustufulltrúar - sumarstörf
Náttúruverndarstofnun leitar að jákvæðum, hjálpsömum og þjónustulunduðum einstaklingum með brennandi áhuga á náttúru og umhverfismálum til sumarstarfa í gestastofum og á tjaldsvæðum stofnunarinnar.
Vesturland, Suðurland, Norðurland eystra
Sumarstörf
Náttúruverndarstofnun
Landverðir - sumarstörf
Náttúruverndarstofnun leitar að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingum til að ganga til liðs við frábæran hóp landvarða sem starfa á friðlýstum svæðum og í þjóðgörðum víðs vegar um landið.
Vesturland, Höfuðborgarsvæðið, Vestfirðir, Suðurland, Austurland, Suðurnes, Norðurland eystra, Norðurland vestra
Heilbrigðisþjónusta
Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Iðjuþjálfi HVE Akranesi
Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) óskar eftir að ráða iðjuþjálfa í 20% stöðu í dagvinnu. Vinnutími eftir nánara samkomulagi. Viðkomandi starfar á Akranesi, bæði á heilsugæslu og sjúkrahúsinu.
Vesturland
Merkigerði 9
Skrifstofustörf
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Sumarstörf - Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Ertu að leita að sumarstarfi með frábæru samstarfsfólki? Við erum að leita að öflugu og jákvæðu fólki með ríka þjónustulund í sumarafleysingastörf á ýmsar starfsstöðvar. Um er að ræða störf á Heilsugæslunni Árbæ, Firði, Hamraborg og Miðbæ.
Höfuðborgarsvæðið
Álfabakki 16
Heilbrigðisþjónusta
Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Sumarafleysing Ljósmóðir í mæðravernd - Heilsugæsla HVE Borgarnesi
HVE óskar eftir að ráða inn í sumarafleysingu ljósmóður í mæðravernd á heilsugæslustöð HVE í Borgarnesi. Tímasetningi er eftir samkomulagi við yfirhjúkrunarfræðing en afleysingin er til allt að 16 vikna. Starfshlutfall er 20%.
Vesturland
Borgarbraut 65
Skrifstofustörf
Vegagerðin
Sumarstörf á þróunar- og þjónustusviði
Vegagerðin leitar eftir einstaklingum til að takast á við fjölbreytt og spennandi verkefni í sumar á þróunar- og þjónustusviði. Um dagvinnustörf er að ræða og starfstöðin er á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða 3 störf á þróunarsviði og 1 starf á þjónustusviði.
Höfuðborgarsvæðið
Suðurhrauni 3