Starfatorg - laus störf hjá ríkinu
Leit
447 störf fundust
Stjórnunarstörf
Lyfjastofnun
Deildarstjóri gæðamats
Lyfjastofnun óskar eftir að ráða deildarstjóra gæðamats, sem heyrir undir svið mats og skráningar lyfja. Við leitum að drífandi, sveigjanlegum og jákvæðum leiðtoga til að leiða öflugan hóp starfsfólks.
Höfuðborgarsvæðið
Skrifstofustörf
Náttúruverndarstofnun
Mannauðs- og launafulltrúi
Náttúruverndarstofnun auglýsir laust til umsóknar starf mannauðs- og launafulltrúa. Leitað er að nákvæmum og skipulögðum einstaklingi með góða samskiptafærni. Um fullt starf er að ræða og mun mannauðs- og launafulltrúi tilheyra sviði mannauðsmála og heyra undir sviðsstjóra.
Suðurland
Sumarstörf
Náttúruverndarstofnun
Þjónustufulltrúar - sumarstörf
Náttúruverndarstofnun leitar að jákvæðum, hjálpsömum og þjónustulunduðum einstaklingum með brennandi áhuga á náttúru og umhverfismálum til sumarstarfa í gestastofum og á tjaldsvæðum stofnunarinnar.
Vesturland, Suðurland, Norðurland eystra
Sumarstörf
Náttúruverndarstofnun
Landverðir - sumarstörf
Náttúruverndarstofnun leitar að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingum til að ganga til liðs við frábæran hóp landvarða sem starfa á friðlýstum svæðum og í þjóðgörðum víðs vegar um landið.
Vesturland, Höfuðborgarsvæðið, Vestfirðir, Suðurland, Austurland, Suðurnes, Norðurland eystra, Norðurland vestra
Sérfræðistörf
Skipulagsstofnun
Sérfræðingur í skipulagsmálum
Skipulagsstofnun óskar eftir að ráða sérfræðing til starfa við fjölbreytt verkefni í skipulagsmálum með áherslu á aðal- og deiliskipulags.
Höfuðborgarsvæðið
Stjórnunarstörf
Skipulagsstofnun
Sviðsstjóri stefnumótunar og miðlunar
Skipulagsstofnun óskar eftir að ráða sviðsstjóra stefnumótunar og miðlunar. Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á að takast á við fjölbreytt verkefni, hafa áræði og þekkingu til að leiða verkefni og getu til að leysa verk á eigin spýtur og í samstarfi við aðra.
Höfuðborgarsvæðið
Stjórnunarstörf
Land og skógur
Skógarvörður á Norðurlandi
Land og skógur leitar að skógarverði á Norðurlandi. Viðkomandi starf er með staðsetningu á Vöglum í Fnjóskadal.
Norðurland eystra
Gunnarsholt
Heilbrigðisþjónusta
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á endurhæfingardeild Grensás
Starf aðstoðardeildarstjóra á endurhæfingadeild Landspítala er laust til umsóknar. Endurhæfingardeild Grensás veitir öfluga endurhæfingu á bæði legu- og dagdeild fyrir fólk sem lent hefur í alvarlegum veikindum, slysum eða færniskerðingu og þarfnast sérhæfðrar meðferðar.
Höfuðborgarsvæðið
Grensási
Heilbrigðisþjónusta
Landspítali
Sjúkraliði óskast á dagdeild skurðlækninga Hringbraut
Við sækjumst eftir sjúkraliða sem hefur áhuga á spennandi og fjölbreyttri hjúkrun. Starfshlutfall er 60-100%, eða eftir samkomulagi og er ráðið í starfið sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Á dagdeild skurðlækninga er frábær starfsandi og metnaður til að ná árangri.
Höfuðborgarsvæðið
Hringbraut
Heilbrigðisþjónusta
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild
Við óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðinga í okkar góða hóp á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild 13EG við Hringbraut. Starfshlutfall er 70%-100% og er upphaf starfa samkomulag. Deildin þjónar einstaklingum sem glíma við sjúkdóma í efri og neðri hluta meltingarvegar og í þvagfærum.
Höfuðborgarsvæðið
Hringbraut
Heilbrigðisþjónusta
Landspítali
Sjúkraliði á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild
Við óskum eftir að ráða sjúkraliða til starfa í okkar góða hóp á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild 13EG og bjóðum nýútskrifaða sjúkraliða jafnt sem reynslumikla velkomna. Unnið er í vaktavinnu, starfshlutfall 70%-100% og er upphaf starfa samkomulag.
Höfuðborgarsvæðið
Hringbraut
Sérfræðistörf
Tryggingastofnun
Sérfræðingur á fjármálasviði
Hefur þú áhuga á að starfa í krefjandi fjármálaumhverfi þar sem reynir á góða þekkingu á bókhaldi, innkaupum og öguðum og vönduðum vinnubrögðum? Þá gætir þú átt heima í frábæru starfsmannateymi TR.
Höfuðborgarsvæðið
Hlíðasmára 11