Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara – SEF
Leiðbeiningar vegna umsókna
Ráðstefnu- og gestafyrirlesarastyrkir
Skólameistarar framhaldsskóla tilnefna 1-2 kennara til að sækja námskeið eða ráðstefnu erlendis. Styrksupphæð er 300.000 krónur á þátttakanda og skulu þátttakendur sækja sama námskeið.
Faggreinafélög tilnefna 1-2 stjórnarmenn til að sækja námskeið eða ráðstefnu erlendis. Styrksupphæð er 300.000 krónur á þátttakanda og skulu þátttakendur sækja sama námskeið. Einnig getur faggreinafélagið sótt um styrk fyrir gestafyrirlesara til að halda erindi fyrir félagið að hámarki 100.000 krónur.
Ef um ferðalög er að ræða er ætlast til að sóttar séu fagráðstefnur eða námskeið. Ekki eru veittir styrkir til kynnisferða, sölusýninga eða skólaheimsókna. Ferðatímabilið/gestafyrirlestrarnir skulu eiga sér stað frá 1. nóvember – 31. október. Ekki er hægt að sækja um styrki afturvirkt fyrir ferðir/fyrirlestra sem hafa átt sér stað.
Umsóknir skulu innihalda rökstudda lýsingu á því hvernig námskeiðið, ráðstefnan eða gestafyrirlesarinn gagnist skólanum, kennurunum og skólasamfélaginu og hvernig kynningu á afrakstri verður háttað.
Styrkir vegna ráðstefnu eru greiddir í lok ferðar og skal þá senda stutta frásögn af ferðinni ásamt flugmiða með tölvupósti á umsjónarmann SEF hjá Rannís. Styrkir vegna fyrirlestra eru greiddir þegar kvittun vegna greiðslu til fyrirlesara ásamt stuttri greinagerð hefur borist umsjónarmanni SEF hjá Rannís rafrænt.
Gera þarf grein fyrir notkun styrks fyrir 1. desember árið eftir úthlutunarár.
Aukastyrkir eru veittir til framhaldsskólakennara utan að landi og eru þeir styrkir greiddir samhliða lokagreiðslu. Vinsamlegast hafið samband við umsjónarmann SEF hjá Rannís vegna þessa.
Styrkir til sumarnámskeiða
Umsækjendur um styrki til að halda sumarnámskeið skulu vera framhaldsskólar eða faggreinafélög. Hægt er að vinna með fræðslustofnunum að einstökum þáttum við framkvæmd en faggreinafélagið skal þá að greina frá því samstarfi innan umsóknar. Faggreinafélag sem hlýtur styrk ber ábyrgð á utanumhaldi, framgangi og uppgjöri verkefnisins.
Félög tungumálakennara geta sótt um styrki vegna námskeiða erlendis annað hvert ár, en önnur félög á þriggja ára fresti. Góður rökstuðningur skal liggja fyrir ástæðu þess að halda námskeiðið erlendis.
Styrkur verður greiddir út til styrkþega að námskeiði loknu, þegar lokaskýrsla og endanlegt uppgjör, ásamt nauðsynlegum fylgigögnum, hefur borist Rannís.
Gera þar grein fyrir notkun styrks fyrir 1. desember á úthlutunarári.
Viðmið um kostnað vegna sumarnámskeiða innanlands
Meðfylgjandi er yfirlit yfir þær upphæðir sem nefndin miðar við við úthlutun styrkja.
Hafa skal til viðmiðunar neðangreindar upphæðir við úthlutun styrkja vegna sumarnámskeiða fagfélaga.
Viðmið um sundurliðun kostnaðar fyrir námskeið:
(Miðað við 20 þátttakendur)
Lengd (dagar) | Laun fyrirlesara (8 klst./dag) | Námsgögn (dæmi) | Kaffi fyrir og eftir hádegi |
|---|---|---|---|
1 | 150.000 | 6.000 | 20.000 |
2 | 300.000 | 12.000 | 40.000 |
3 | 450.000 | 18.000 | 60.000 |
4 | 600.000 | 24.000 | 80.000 |
5 | 750.000 | 30.000 | 100.000 |
Umsjónarkostnaður fagfélags/skóla: Ræðst af umfangi vinnu
Ef erlendur fyrirlesari er á námskeiðinu þá greiðir nefndin fargjald og gistingu fyrir hann.
Ef námskeið er haldið úti á landi má sækja um styrk vegna rútukostnaðar (gisting úti á landi er á kostnað þátttakenda).
Upplýsingar vegna endurgreiðslu þátttakenda utan að landi á ferða- og/eða gistikostnaði vegna þátttöku á sumarnámskeiðum
Þeir þátttakendur sem sækja námskeið og búa í meira en 50 km. fjarlægð frá Reykjavík geta sótt um endurgreiðslu á ferða- og/eða gistikostnaði.
Til að þátttakendur fái endurgreiðslu vegna útlagðs kostnaðar þarf að skila inn reikningi/kvittun fyrir þeim kostnaði, ásamt upplýsingum um bankareikning sem hægt er að leggja styrkinn inná. Vegna aksturs er nóg að senda sömu upplýsingar í tölvupósti á ábyrgðaraðila námskeiðs. Styrkþegi heldur utan um þennan kostnað og greiðir einstaka kennurum, en kostnaður er endurgreiddur af SEF við uppgjör námskeiðs.
Ekki er greitt fyrir ferðir innan Reykjavíkur (s.s. bílaleigubílar, leigubílar eða annað).
Ekki er greitt sérstaklega fyrir fæði.
| Flug að hámarki | Akstur að hámarki | Gisting að hámarki, pr. nótt |
|---|---|---|---|
Grundarfjörður |
| 13.500 | 12.700 |
Ísafjörður | 39.000 | 27.000 | 12.700 |
Sauðárkrókur |
| 21.000 | 12.700 |
Akureyri | 37.500 | 24.000 | 12.700 |
Laugar | 37.500 | 25.500 | 12.700 |
Húsavík | 37.500 | 25.500 | 12.700 |
Egilsstaðir | 43.500 | 40.500 | 12.700 |
Neskaupstaður | 49.500 | 46.500 | 12.700 |
Höfn | 40.500 | 28.500 | 12.700 |
Vestmannaeyjar | 31.500 | 18.000 (ferja+akstur) | 12.700 |
Laugarvatn |
| 6.000 | 12.700 |
Akranes |
| 6.000 |
|
Keflavík |
| 4.500 |
|
Selfoss |
| 5.300 |
|
Reglur vegna umsókna sumarnámskeiða erlendis
Ef faggreinafélög halda námskeið erlendis, verður það að vera á námskeið skipulagt af viðurkenndri menntastofnun erlendis eða sýnt fram á með vönduðum hætti hver gagnsemin er fyrir viðkomandi faggreinafélag.
Einungis eru styrkt námskeiðsgjöld, ferðir fyrir kennara utan af landi til Reykjavíkur og þóknun til skipuleggjanda fagfélags. Ferðir, uppihald, gisting, leigubílar o.þ.h. eru ekki styrkt af SEF. Stjórn SEF áskilur sér að auki alltaf þann rétt að setja þak á styrkupphæðir.
Tungumálakennarar geta farið út annað hvert ár og önnur félög þriðja hvert ár.
Góð rök skulu liggja fyrir gagnsemi þess að sækja námskeiðið erlendis.
Þjónustuaðili
Rannsóknamiðstöð Íslands