Fara beint í efnið
Dómstólar Forsíða
Dómstólar Forsíða

Dómstólar

Sakarkostnaður, tegundir refsinga, fullnusta dóma o.fl.

Sakarkostnaður

Ef ákærði er sakfelldur fyrir það eða þau brot sem honum eru gefin að sök skal hann greiða sakarkostnað. Til sakarkostnaðar telst öll óhjákvæmileg útgjöld vegna rannsóknar sakamáls og meðferðar þess, þar á meðal:

  • þókunun verjanda og réttargæslumanns

  • kostnaður og þóknun vitna

  • kostnaður við sérfræðilegar álitsgerðir og matsgerðir

  • kostnaður af birtingu ákæru, kvaðninga og annarra tilkynninga.

Ef ákærði er sakfelldur fyrir hluta þeirra brota sem honum eru gefin að sök en sýknaður af öðrum getur honum verið gert að greiða hluta sakarkostnaðar á móti ríkissjóði.

Ef ákærði er sýknaður eða mál gegn honum fellt niður verður honum ekki gert að greiða sakarkostnað nema hann hafi sjálfur valdið kostnaðinum með vísvitandi og ólögmætu framferði við rannsókn máls eða meðferð þess

Tegundir refsinga og annarra viðurlaga

Refsingar geta verið fangelsi eða sekt í ríkissjóð.

Fangelsi

Fangelsi getur ýmist verið óskilorðsbundið, skilorðsbundið eða skilorðsbundið að hluta.

Greiðsla og innheimta sekta:

Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra sér um að innheimta sektir og sakarkostnað fyrir íslenska ríkið. Hægt er að hafa samband í síma 458-2500 til að fá frekari upplýsingar. Þá eru einnig ýmsar hagnýtar upplýsingar um greiðslu sekta á heimasíðu sýslumannsembættisins:

Frekari upplýsingar eru á heimasíðu sýslumannsins á Norðurlandi vestra

Þar er t.d. að finna upplýsingar um hvaða úrræði eru notuð til að knýja á um greiðslu sekta, hvernig sækja á um greiðsludreifingu og hvaða skilyrði þurfa að vera uppfyllt til að menn eigi möguleika á því að afplána vararefsingu eða sinna samfélagsþjónustu í stað þess að greiða sekt.

Hvað er vararefsing?

Vararefsing er fangelsisrefsing sem þarf að afplána ef sekt er ekki greidd. Þegar vararefsing fésektar er ákvörðuð er höfð til hliðsjónar tafla í reglum um reglum vararefsingu fésektar nr. 1/2020.

Önnur viðurlög

Dómstólar geta einnig gert mönnum önnur viðurlög, s.s. sviptingu ökuréttar vegna tiltekinna umferðarlagabrota og upptöku eigna og/eða ávinnings af brotum.

Upplýsingar um skilyrði og umsókn um samfélagsþjónustu

Þeir sem hafa verið dæmdir í allt að 24 mánaða óskilorðsbundið fangelsi geta sótt um að afplána refsingu með samfélagsþjónustu. Samfélagsþjónusta er tímabundið, ólaunað starf sem getur komið í stað fangelsisvistar, hvort sem um er að ræða óskilorðsbundna refsingu eða vararefsingu fésekta.

Ákvörðun um samfélagsþjónustu og framkvæmd hennar er í höndum Fangelsismálastofnunar. Á heimasíðu stofnunarinnar að finna ítarlegar upplýsingar um skilyrði og annað þessu tengt. Samfélagsþjónusta | Fangelsismálastofnun ríkisins

Útgáfa dóma á netinu, nafnleynd o.fl.

Meginreglan er sú að dómar í sakamálum eru gefnir út á netinu. Þó eru nokkrar undantekningar á þessu:

  • Þegar aðili er dæmdur til að greiða sekt sem er lægri en áfrýjunarfjárhæð er dómur ekki gefinn út á heimasíðu dómstólanna.

  • Viðurlagaákvarðanri um sektir og vararefsingu eru heldur ekki birtar.

Nöfn þeirra sem koma fram í dómi sakamáls, t.d. brotaþola og vitna, skulu ekki birt. Ef ákærður einstaklingur er sakfelldur er viðkomandi almennt nafngreindur. Nafn hans skal þó ekki birt:

  • ef birting á nafni hans er andstæð hagsmunum brotaþola, t.d. vegna tengsla þeirra,

  • ef hann var ekki orðinn 18 ára þegar þau brot sem ákært er fyrir voru framin.

Hægt er að sækja um nafnleynd ári eftir að dómur var gefinn út.

Sjá nánar:

Reglur um útgáfu dómsúrlausna: https://www.domstolasyslan.is/domstolasyslan/reglur/reglur-um-utgafu-doma-og-urskurda-a-vefsidum-domstola/