Fara beint í efnið
Dómstólasýslan Forsíða
Dómstólasýslan Forsíða

Dómstólasýslan

Stafræn vegferð dómstóla

Af hverju erum við að þessu?

Stafrænt dómskerfi er ein af megináherslum dómstóla og dómstólasýslunnar í stefnu 2023–2027. Stafræn umbreyting málsmeðferðar í einka- og sakamálum og stafræn stjórnsýsla eru lykilþættir í framþróun í starfsemi dómstóla. Hún felur í sér ávinning fyrir dómstóla og samfélagið í heild. Í samræmi við stefnu dómstólasýslunnar um stafræna dómstóla er unnið að því að dómstólar verði stafrænir að svo miklu leyti sem það samræmist réttaröryggi borgaranna og meginreglum réttarfars um m.a. opinbera og milliliðalausa málsmeðferð. Á síðustu árum hefur dómstólasýslan tekið stór skref í stafrænni vegferð dómstóla en verkefninu er þó ekki lokið.

Hvað er réttarvörslugátt og hvaða mál fara þar í gegn?

Dómstólasýslan vinnur með dómstólum og stofnunum réttarvörslukerfisins að þróun og innleiðingu réttarvörslugáttar, sem er verkefni á vegum dómsmálaráðuneytisins. Réttarvörslugátt tengir saman dómstóla og allar stofnanir réttarvörslukerfisins og tryggir rafrænt/stafrænt flæði gagna og upplýsinga á milli þeirra, auk þess sem hún er leið til samskipta við ytri aðila, svo sem lögmenn.

Í dag er staðan sú að lögregla og ákæruvald geta sent allar kröfur um rannsóknarúrskurði til héraðsdómstóla um réttarvörslugátt. Boðað er til þinghalds með tilkynningu úr réttarvörslugátt. Dómari vinnur úrskurðinn í réttarvörslugáttinni og er hann gerður aðgengilegur sækjanda og verjanda þar ásamt þingbók málsins. Hægt er að kæra úrskurð héraðsdóms í réttarvörslugátt og skila aðilar greinargerðum til Landsréttar um gáttina. Úrskurður Landsréttar er síðan gerður aðgengilegur í réttarvörslugátt, bæði sækjanda og verjanda og eftir atvikum Fangelsismálastofnun.

Héraðsdómstólar geta einnig tekið við öllum ákærum og öðrum gögnum í ákærumálum um réttarvörslugátt. Fyrirköll eru unnin í réttarvörslugátt og send, ásamt ákæru, til birtingar í stafrænu pósthólfi ákærða. Sækjandi, verjandi og réttargæslumaður fá aðgang að gögnum málsins og geta lagt fram frekari gögn í réttarvörslugátt. Dómari staðfestir dómsúrlausn sína rafrænt í réttarvörslugátt og er hún þá gerð aðgengileg þar. Ef þörf er á er hún einnig send í birtingu í stafrænu pósthólfi ákærða. Dómsúrlausnin berst jafnframt til embættis ríkissaksóknara um réttarvörslugátt og eftir atvikum Fangelsismálstofnunar þegar kemur að fullnustu dómsúrlausnarinnar.

Skjöl sem berast dómstóli í gegnum réttarvörslugátt þarf ekki að afhenda á pappír. Notkun réttarvörslugáttarinnar einfaldar því aðgengi að gögnum, dregur úr pappírsnotkun og fækkar ferðum í dómhús.

Önnur spennandi verkefni

Samhliða þróun og innleiðingu réttarvörslugáttar hefur dómstólasýslan unnið að fjölbreyttum verkefnum sem styðja öll við stafrænu vegferð dómstóla. Má þar nefna setningu leiðbeinandi reglna um fjarþinghöld dómstóla nr. 9/2024 en markmið þeirra er að stuðla að aukinni skilvirkni og hagkvæmni við rekstur mála fyrir dómi með notkun fjarfundarbúnaðar þar sem við á og að gættum grunnreglum um opinbera og réttláta málsmeðferð. Þá er reglunum ætlað að tryggja samræmda framkvæmd fjarþinghalda og stuðla með því að jafnræði allra fyrir dómstólum.

Þá hefur dómstólasýslan látið þróa gervigreindartól sem getur séð um frumhreinsun dómsúrlausna áður en þær eru gefnar út á heimasíðum dómstóla. Starfsmaður dómstóla mun þó alltaf fara yfir hreinsunina og bera ábyrgð á því að útgáfa dómsúrlausna sé í samræmi við reglur dómstólasýslunnar þar um. Eins og er standa yfir prófanir en lausnin verður innleidd í alla dómstóla á næstu vikum. Auk þess standa yfir prófanir á talgreinalausnum sem geta ritað upp skýrslutökur í sakamálum sem áfrýjað er til Landsréttar. Báðar þessar lausnir munu koma til með að aðstoða með gríðarlega tímafrek verkefni og auka þannig skilvirkni innan dómstóla.

Hvað er næst á dagskrá?

Nú er verið að hanna og þróa ferli áfrýjaðra mála í réttarvörslugátt en til stendur að innleiða einfalda lausn fyrir áfrýjun mála til Landsréttar fyrir áramót.

Dómstólasýslan er einnig um þessar mundir að hefja undirbúning fyrir þróun gáttar fyrir meðferð einkamála, sambærilegri réttarvörslugáttinni fyrir sakamál. Stefnt er að því að byrja á einkamálum sem sæta svokallaðari afbrigðilegri málsmeðferð en markmiðið er þó að öll mál geti borist til dómstóla með stafrænum hætti.